Spes: Skór með falinni myndavél til að mynda upp undir pils

Lög­reglu­yf­ir­völd í Kyoto í Japan hafa und­an­farið lagt hald á hund­ruð para af sér­hönn­uðum íþrótta­skóm. Í tám skónna var búið að koma fyrir mynda­vélum sem var hægt að nota til að taka myndir upp undir pils kvenna.

Lög­reglan í Kyoto gerði hús­leit hjá fyr­ir­tæk­inu sem fram­leiðir og selur skóna í júlí, og komst þar yfir lista með nöfnum um fimmtán hund­ruð við­skipta­vina sem höfðu pantað sér dóna­skóna, sem eru þekktir undir heit­inu „Tosatsu shoes.“

Frá því að list­inn komst í hendur lög­reglu­yf­ir­valda hafa lög­reglu­menn heim­sótt við­skipta­vini fyr­ir­tæk­is­ins með skipu­legum hætti og boðið þeim að láta skóna af hendi af fúsum og frjálsum vilja. Næstum allir sem lög­regla hafði sam­band við voru til­búnir að segja skilið við dóna­skóna.

Samkvæmt upp­lýs­ingum lög­reglu seldi fyr­ir­tækið sem fram­leiddi mynda­véla­skóna um 2.500 pör af skónum á síð­ast­liðnum tveimur árum. Lög­reglu­yf­ir­völd í Kyoto hafa sent öðrum ­lög­reglu­um­dæmum upp­lýs­ingar um dóna­karla í þeirra umdæmum sem kunna að hafa vafa­samt skópar í fórum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár