Flokkur

Spes

Fólk

Spes: Skór með fal­inni mynda­vél til að mynda upp undir pils

Lög­reglu­yf­ir­völd í Kyoto í Japan hafa und­an­farið lagt hald á hund­ruð para af sér­hönn­uðum íþrótta­skóm. Í tám skónna var búið að koma fyrir mynda­vélum sem var hægt að nota til að taka myndir upp undir pils kvenna. Lög­reglan í Kyoto gerði hús­leit hjá fyr­ir­tæk­inu sem fram­leiðir og selur skóna í júlí, og komst þar yfir lista með nöfnum um fimmtán...
Fólk

Spes: Lítið gælu­dýr í kaup­bæti við kaup á tíu stórum pít­sum

Uppátæki Pizza Hut í bænum Mount Waverley í Mel­bourne, sem var ætlað til að trekkja að við­skipta­vini, hefur vakið mikla reiði og hneykslað almenn­ing. Hörð við­brögð almenn­ings má rekja til nýrrar aug­lýs­inga­her­ferðar, eða til­boðs, þar sem aug­lýst var að lítið gælu­dýr, frá gælu­dýra­búð í nágrenn­inu, myndi fylgja með í kaup­bæti við kaup á tíu stórum pít­sum. Upp­á­tækið fékk grimma útreið...
Fólk

Spes: Átta lét­ust þegar þeir voru að skera sér flóð­hesta­kjöt

Umferð­ar­ó­happ átti sér stað í Limpopo-hér­aði í Suður-Afríku á sunnu­dag þegar pall­bíl var ekið inn í hóp fólks sem var að skera sér kjöt úr dauðum flóð­hesti í veg­kant­inum. Flóð­hest­ur­inn drapst er hann varð fyrir vöru­bíl á laug­ar­deg­inum, en hræ hans hafði dregið að fjölda fólks frá nær­liggj­andi þorpum sem skar sér kjöt­bita úr dauðum flóð­hest­inum. Ökumaður pall­bíls­ins sá ekki...
Fólk

Spes: Fæð­ing­ar­vott­orðið glat­að­ist fyrir 40 árum

Þegar Leandra Becerra Lum­breras fædd­ist í litlu þorpi í Mexíkó hinn 31. ágúst árið 1887 var enn rúm­lega ár í að Kobbi Kviðrista hrelldi Lund­úna­búa með hrotta­fengnum glæpum sínum. Á þeim tíma hafði heldur engin heyrt um útvarp, körfu­bolta eða flug­vél­ina. Ætt­ingjar Leöndru full­yrða að gamla konan sé 127 ára gömul og þar með elsta mann­eskja sem nokkurn tím­ann hefur...
Fólk

Spes: Þróðuðu nagla­lakk sem greinir lyf í drykkjum

Nemar við efna­fræði- og verk­fræði­deild Norður-Karólínu­háskóla í Banda­ríkj­unum hafa þróað nýtt vopn í bar­átt­unni gegn kyn­ferðis­ofbeldi. Um er að ræða nagla­lakk sem greinir hvort nauðg­un­ar­lyfjum hefur verið laumað út í drykki. Fjölmörg dæmi eru um að ofbeldis­menn hafi laumað lyfjum á borð við Rohypnol, Xanax og GHB í drykki kvenna á skemmti­stöðum til þess að koma fram vilja sínum, en...
Fólk

Spes: Hefur gleymt hvernig á að ganga áfram

Mani Manithan hóf heldur óvenju­lega „frið­ar­göngu“ fyrir 25 árum. Mani, sem býr á Indlandi og er mik­ill frið­ar­sinni, ákvað upp á sitt ein­dæmi fyrir ald­ar­fjórð­ungi að fara allra sinna leiða aft­urá­bak. Með athæf­inu vildi ind­verska aft­ur­gangan leggja lóð sín á vog­ar­skál­arnar í bárátt­unni fyrir heims­friði. „Að ganga venju­lega er orðið mun meiri áskorun fyrir mig í dag. Hugur minn hefur...
Fólk

Spes: Kúka í sund­laug og horfa á fólk flýja í ofvæni

Nýtt æði virð­ist hafa tekið við af „plank­inu“ hjá drukknum breskum ferða­löngum í frí­inu. Hið nýja æði hefur hlotið nafnið „logg­ing“ og er mun vafa­sam­ara og ógeðs­legra. „Logging“ snýst um að kúka í þétt­setna sund­laug, lauma sér upp úr og fylgj­ast svo með sund­laug­ar­gestum flýja í ofvæni þegar sá brúni upp­götvast á laug­ar­botn­inum. Hótel á vin­sælum áfanga­stöðum breskra steggj­unar- og...
Fólk

Spes: Inn­flytj­enda­börn lík­lega smituð af Ebóla­veirunni

Repúblikan­inn Todd Rokita, sem á sæti í full­trúa­deild banda­ríska þings­ins, telur að inn­flytj­enda­börn frá Mið-Ameríku séu mögu­lega smituð af Ebóla­veirunni. Þing­mað­ur­inn lét ummælin falla í útvarps­við­tali á dög­unum, en Ebóla­veiran hefur dregið um átta hund­ruð manns til bana í Vestur-Afríku á árinu. Þá full­yrti Rokita í áður­nefndu útvarps­við­tali að almenn­ingi staf­aði tölu­verð heilsu­far­sógn af því að börn­unum væri komið í...
Fólk

Spes: Einka­núm­erið ILVTOFU þótti of klám­fengið

Yfirvöld Tennessee-ríkis í Banda­ríkj­unum höfn­uðu á dög­unum beiðni starfs­manns PETA, sem eru banda­rísk sam­tök sem berj­ast fyrir rétt­indum og vel­ferð dýra, um einka­núm­erið ILVTOFU, þar sem það þótti of klám­fengið. Dýra­vernd­un­ar­sinn­inn Whitney Clark hugð­ist sýna ást sína á tófú í verki með því að setja einka­núm­erið á bif­reið­ina sína. Yfirvöld í Tennessee höfn­uðu beiðni hennar með þeim rökum að hægt...
Fólk

Spes: Lögga opin­berar hatur sitt á hjól­reiða­mönnum

Laura Weintraub, sem starfar sem lög­reglu­þjónn í sjálf­boða­starfi hjá lög­reglu­yf­ir­völdum í Santa Paula í Banda­ríkj­unum, hefur verið send í ótíma­bundið leyfi frá störfum vegna mynd­bands sem hún setti inn á Youtube. Í mynd­band­inu lýsir Weintraub djúp­stæðu hatri sínu í garð hjól­reiða­manna. Í stiklunni segir hún: „Ég hata hjól­reiða­menn, hvern ein­asta þeirra.“ Þetta segir Weintraub þar sem hún er far­þegi í...
Fólk

Spes: Flúði nak­inn hús­eig­anda með ógn­vekj­andi húð­flúr

Karl­maður í Georgetown í Banda­ríkj­unum vakn­aði upp við vondan draum á dög­unum, þegar hann varð var við inn­brots­þjóf á heim­ili sínu. Maðurinn vakn­aði, þar sem kona hans lá sof­andi við hlið­ina á honum, reis úr rekkju, greip skamm­byssu og fór út úr svefn­her­berg­inu. Inn­brots­þjóf­ur­inn varð viti sínu fjær af hræðslu þegar hús­eig­and­inn birt­ist nak­inn, með úfið hár og skamm­byssu, en...
Fólk

Spes: Skildi við eig­in­kon­una á brúð­kaups­nótt­ina

Hjóna­skiln­aðir eru dag­legt brauð en sem betur fer eru fá dæmi um að fólk skilji á sjálfri brúð­kaups­nótt­inni. Það gerð­ist hins vegar á dög­unum í Sádi-Arabíu, þegar nýbak­aður eig­in­maður ákvað að skilja við kon­una sína í skyndi eftir að fyrr­ver­andi elsk­hugi hennar sendi honum minnis­lykil sem inni­hélt nekt­ar­myndir af kon­unni. Hjónin voru stödd á hót­eli, þar sem þau ætl­uðu að...

Mest lesið undanfarið ár