Spes: Flúði nakinn húseiganda með ógnvekjandi húðflúr

Karl­maður í Georgetown í Banda­ríkj­unum vakn­aði upp við vondan draum á dög­unum, þegar hann varð var við inn­brots­þjóf á heim­ili sínu.

Maðurinn vakn­aði, þar sem kona hans lá sof­andi við hlið­ina á honum, reis úr rekkju, greip skamm­byssu og fór út úr svefn­her­berg­inu.

Inn­brots­þjóf­ur­inn varð viti sínu fjær af hræðslu þegar hús­eig­and­inn birt­ist nak­inn, með úfið hár og skamm­byssu, en hús­eig­and­inn skartar sömu­leiðis for­láta húð­flúri af mann­inum með ljá­inn, eða dauð­anum sjálfum. „Ég veit ekki hvort hann var meira hræddur við mig eða byss­una,“ segir hús­eig­and­inn í þar­lendum fjöl­miðlum sem fjalla um málið.

Inn­brots­þjóf­ur­inn, þá titr­andi af hræðslu, bað hús­eig­and­ann afsök­unar áður en hann skutl­aði sér, með haus­inn á undan, út um glugga á fyrstu hæð húss­ins.

Hús­eig­and­inn gat séð móta fyrir lík­ama inn­brots­þjófs­ins á gras­flöt fyrir utan húsið dag­inn eftir, þar sem inn­brots­þjóf­ur­inn lenti eftir að hafa kastað sér út um glugg­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár