Spes: Þróðuðu naglalakk sem greinir lyf í drykkjum

Nemar við efna­fræði- og verk­fræði­deild Norður-Karólínu­háskóla í Banda­ríkj­unum hafa þróað nýtt vopn í bar­átt­unni gegn kyn­ferðis­ofbeldi. Um er að ræða nagla­lakk sem greinir hvort nauðg­un­ar­lyfjum hefur verið laumað út í drykki.

Fjölmörg dæmi eru um að ofbeldis­menn hafi laumað lyfjum á borð við Rohypnol, Xanax og GHB í drykki kvenna á skemmti­stöðum til þess að koma fram vilja sínum, en lyfin geta valdið tíma­bundnu minnis- og með­vit­und­ar­leysi.

Nagla­lakkið sem um ræðir hefur hlotið nafnið Undercover Colors, en það breytir um lit þegar það kemst í snert­ingu við nauðg­un­ar­lyf. Því er brýnt fyrir konum með nagla­lakkið að þær hræri í drykkjum með fingr­unum áður en þeirra er neytt á skemmti­stöðum.

Varan náði athygli fjár­festis á sínum tíma á nýsköp­un­ar­ráð­stefnu sem greiddi hund­rað þús­und Banda­ríkja­dali til að fjár­magna frum­gerð nagla­lakks­ins.

Þá unnu nem­arnir sem þró­uðu nagla­lakkið frum­kvöðla­keppni sem haldin var á dög­unum í Norður-Kar­ólínu­ríki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár