Spes: Innflytjendabörn líklega smituð af Ebólaveirunni

Repúblikan­inn Todd Rokita, sem á sæti í full­trúa­deild banda­ríska þings­ins, telur að inn­flytj­enda­börn frá Mið-Ameríku séu mögu­lega smituð af Ebóla­veirunni.

Þing­mað­ur­inn lét ummælin falla í útvarps­við­tali á dög­unum, en Ebóla­veiran hefur dregið um átta hund­ruð manns til bana í Vestur-Afríku á árinu.

Þá full­yrti Rokita í áður­nefndu útvarps­við­tali að almenn­ingi staf­aði tölu­verð heilsu­far­sógn af því að börn­unum væri komið í fóstur hjá banda­rískum ætt­ingjum þeirra eða vel­gjörð­ar­mönnum tíma­bundið, áður en þau væru send aftur úr landi, eða til fram­búðar.

Engin dæmi eru um að nokkur hafi smit­ast af Ebóla­veirunni á vest­ur­hveli jarð­ar­innar, og ekk­ert þeirra ríf­lega þrjá­tíu þús­und barna sem komið hefur verið fyrir í fóstur í Banda­ríkj­unum hefur greinst með veiruna, að því er fram kemur í upp­lýs­ingum frá banda­rísku Flótta­manna­stofn­un­inni.

Þá und­ir­gang­ast inn­flytj­enda­börn ítar­lega lækn­is­skoðun og bólu­setn­ingu við kom­una til Banda­ríkj­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár