Spes: Hefur gleymt hvernig á að ganga áfram

Mani Manithan hóf heldur óvenju­lega „frið­ar­göngu“ fyrir 25 árum. Mani, sem býr á Indlandi og er mik­ill frið­ar­sinni, ákvað upp á sitt ein­dæmi fyrir ald­ar­fjórð­ungi að fara allra sinna leiða aft­urá­bak. Með athæf­inu vildi ind­verska aft­ur­gangan leggja lóð sín á vog­ar­skál­arnar í bárátt­unni fyrir heims­friði.

„Að ganga venju­lega er orðið mun meiri áskorun fyrir mig í dag. Hugur minn hefur algjör­lega gleymt hvernig slíkt er gert, en mér finnst mjög gott að ganga svona. Líf mitt hefur verið við­burð­ar­ríkt með sigrum og ósigrum, og ég ætla að halda áfram að ganga aft­urá­bak þar til við náum heims­friði,“ segir Mani í sam­tali við erlenda fjöl­miðla.

„Á síð­ustu árum hefur hryðju­verka­starf­semi á alþjóða­vísu bara auk­ist. Það hafa orðið svo margar spreng­ingar, og ungt fólk á villi­götum í svo mörgum til­fellum sem ber ábyrgð á voða­verk­unum. Ég hef gengið aft­urá­bak í 25 ár til að for­dæma slíka verkn­aði, það eina sem ég vil er heims­friður og ég mun aldrei gef­ast upp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár