Spes: Einkanúmerið ILVTOFU þótti of klámfengið

Yfirvöld Tennessee-ríkis í Banda­ríkj­unum höfn­uðu á dög­unum beiðni starfs­manns PETA, sem eru banda­rísk sam­tök sem berj­ast fyrir rétt­indum og vel­ferð dýra, um einka­núm­erið ILVTOFU, þar sem það þótti of klám­fengið.

Dýra­vernd­un­ar­sinn­inn Whitney Clark hugð­ist sýna ást sína á tófú í verki með því að setja einka­núm­erið á bif­reið­ina sína. Yfirvöld í Tennessee höfn­uðu beiðni hennar með þeim rökum að hægt væri að túlka einka­núm­erið á klám­feng­inn hátt.

Samkvæmt fjöl­miðlum vest­an­hafs hafa fleiri starfs­menn PETA óskað eftir sama einka­núm­er­inu í öðrum ríkjum Banda­ríkj­anna, án árang­urs.

„Það eina sem ég vildi gera var að dreifa vegan-boð­skapnum með núm­era­plöt­unni minni,“ er haft eftir Clark í erlendum fjöl­miðlum. „Það virt­ist rök­rétt að breyta núm­era­plöt­unni í eitt­hvað sem ég trúi á.“

Á sam­fé­lags­miðlum lagði fólk til að Clark myndi breyta skila­boð­unum yfir í TOFULVR, en Clark ákvað engu að síður að sækja bara um venju­lega núm­era­plötu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár