Spes: Lögga opinberar hatur sitt á hjólreiðamönnum

Laura Weintraub, sem starfar sem lög­reglu­þjónn í sjálf­boða­starfi hjá lög­reglu­yf­ir­völdum í Santa Paula í Banda­ríkj­unum, hefur verið send í ótíma­bundið leyfi frá störfum vegna mynd­bands sem hún setti inn á Youtube.

Í mynd­band­inu lýsir Weintraub djúp­stæðu hatri sínu í garð hjól­reiða­manna. Í stiklunni segir hún: „Ég hata hjól­reiða­menn, hvern ein­asta þeirra.“ Þetta segir Weintraub þar sem hún er far­þegi í bíl og tekur myndir af hjól­reiða­mönnum í veg­kant­inum. Weintraub gengur meira að segja svo langt að spyrja öku­mann bíls­ins hvað hún þurfi að borga honum mikið svo hann aki yfir hjól­reiða­mann. ­Öku­mað­ur­inn svarar þá um hæl: „Hversu mik­inn pen­ing ertu með í vesk­inu þínu?“

Mynd­bandið vakti hörð við­brögð meðal almenn­ings, og ekki síst hjól­reiða­manna sem hafa for­dæmt lög­reglu­þjón­inn fyrir ummæli sín.

Facebook-síða lög­reglu­yf­ir­valda í Santa Paula log­aði eftir að Weintraub setti mynd­bandið á vef­inn, og brott­vikn­ingar Weintraub var kraf­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár