Spes: Lítið gæludýr í kaupbæti við kaup á tíu stórum pítsum

Uppátæki Pizza Hut í bænum Mount Waverley í Mel­bourne, sem var ætlað til að trekkja að við­skipta­vini, hefur vakið mikla reiði og hneykslað almenn­ing. Hörð við­brögð almenn­ings má rekja til nýrrar aug­lýs­inga­her­ferðar, eða til­boðs, þar sem aug­lýst var að lítið gælu­dýr, frá gælu­dýra­búð í nágrenn­inu, myndi fylgja með í kaup­bæti við kaup á tíu stórum pít­sum.

Upp­á­tækið fékk grimma útreið á sam­fé­lags­miðlum og var fyr­ir­tækið harð­lega gagn­rýnt fyrir að ætla að gefa við­skipta­vinum sínum dýr eins og leik­föng.

Í kjöl­farið höfðu dýra­vernd­un­ar­sam­tök sam­band við gælu­dýra­búð­ina, þar sem við­ur­kennt var að aug­lýs­inga­her­ferðin hefði verið „slæm hug­mynd“.

Skömmu síðar sendi veit­inga­keðjan frá sér yfir­lýs­ingu þar sem kom fram að hin „van­hugs­aða“ og „óvið­eig­andi“ aug­lýs­inga­her­ferð hefði hvorki verið borin undir né sam­þykkt af Pizza Hut-keðj­unni í Ástralíu. Í fram­hald­inu voru hinar ­umdeildu aug­lýs­ingar fjar­lægðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár