Spes: Skildi við eiginkonuna á brúðkaupsnóttina

Hjóna­skiln­aðir eru dag­legt brauð en sem betur fer eru fá dæmi um að fólk skilji á sjálfri brúð­kaups­nótt­inni.

Það gerð­ist hins vegar á dög­unum í Sádi-Arabíu, þegar nýbak­aður eig­in­maður ákvað að skilja við kon­una sína í skyndi eftir að fyrr­ver­andi elsk­hugi hennar sendi honum minnis­lykil sem inni­hélt nekt­ar­myndir af kon­unni.

Hjónin voru stödd á hót­eli, þar sem þau ætl­uðu að verja brúð­kaups­nótt­inni, þegar brúð­gum­inn fór í tölvu og barði um­ræddar myndir augum.

Elsk­hug­inn fyrr­ver­andi hafði beðið kon­una um að stofna til ást­ar­sam­bands með sér en eftir að hún til­kynnti honum að hún hygð­ist gift­ast öðrum manni og hefja nýtt líf hót­aði hann henni að senda mynd­irnar til verð­andi eig­in­manns, sem hann og gerði.

„Hann ákvað að skilja við kon­una sína á staðnum,“ hafa fjöl­miðlar í Kúvæt eftir trú­ar­leið­tog­anum Shaikh Ghazi Bin Abdul Aziz al Shammari, sem eig­in­mað­ur­inn leit­aði til í öngum sínum dag­inn eftir brúð­kaups­nótt­ina örlaga­ríku. „Hann var í áfalli og þoldi ekki hneykslið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár