Klúðrið í kringum Reykjavíkurmaraþonið

Hinn fót­frái Arnar Pét­urs­son varð fyrstur Íslend­inga í enda­mark Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, sem fram fór í miðbæ Reykja­víkur laug­ar­dag­inn 23. ágúst síð­ast­lið­inn. Sigur hans var afger­andi, en hann kom í mark rúmum níu mín­útum á undan næsta sam­landa hans, sem var lang­hlaupar­inn Pétur Sturla Bjarna­son sem sigr­aði Reykja­vík­ur­mara­þonið árið áður.

Við kom­una í enda­markið var Arnar krýndur Íslands­meist­ari karla í mara­þoni. Skömmu eftir að hlaup­inu lauk kærði Pétur Sturla úrslit hlaups­ins til yfir­dóm­nefndar Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, þar sem hann sak­aði Arnar um að hafa svindlað í hlaup­inu og krafð­ist þess að þátt­töku­réttur hans í hlaup­inu yrði ógiltur.

Reglur kveða á um bann við fylgd hjólreiðamanna


Í kærunni var Arnar sak­aður um að hafa notið lið­sinnis tveggja hjól­reiða­manna í hlaup­inu, svo­kall­aðra héra, sem hafi hjólað með Arnari og hvatt hann áfram í hlaup­inu. Með athæf­inu hafi Arnar brotið reglur Reykja­vík­ur­mara­þons­ins og þar með ógilt þátt­töku­rétt sinn.

Í 10. grein reglna Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, sem aðgengi­legar eru á heima­síðu hlaups­ins segir: "Hlaupa­brautin er ein­göngu ætluð kepp­endum. Ekki er heim­ilt að fylgja hlaup­urum gang­andi, hlaup­andi, á hjóli eða öðrum far­ar­tækjum (und­an­þága fyrir fylgd­ar­menn fatl­aðra). Það er á ábyrgð þátt­tak­enda að vísa frá þeim sem fylgja." Þá segir í 18. grein regln­anna: "Brot á ofan­greindum reglum ógilda þátt­töku­rétt í hlaup­inu."

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var 10. greinin sett inn í reglur Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, vegna þess að hjól­reiða­menn höfðu truflað fram­gang hlaups­ins í gegnum tíð­ina. Reyndir hlauparar sem Kjarninn hefur rætt við eru þó á einu máli um að nán­ast ómögu­legt sé að fram­fylgja regl­unni, þar sem hlaupa­braut­inn, sé ekki afgirt alla hlaupa­leið­ina og svo liggi hún um göngu- og hjóla­stíga. Þá eru hlaupararnir sam­mála um að það fylgi því óum­deilt for­skot að hafa hjól­reiða­menn með sér til að stjórna hlaupa­hraða og hvetja sig áfram.

[embed]https://vimeo.com/105774205[/embed]

Viðurkennt að reglur maraþonsins voru brotnar


Yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins tók kæru Péturs Sturla til efn­is­legrar með­ferðar á fundi sínum 28. ágúst síð­ast­lið­inn. Á meðal gagna í mál­inu sem lágu til grund­vallar nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefnd­ar­innar voru ásamt kæru máls­ins, ljós­myndir af Arnari Pét­urs­syni ásamt hjól­reiða­mönnum á fimm mis­mun­andi stöðum í hlaup­inu, mynd­bands­upp­taka af hinum kærða ásamt hjól­reiða­mönnum á göngu­stíg við Suð­ur­lands­braut, mynd­brot úr þætti RÚV af hlaup­urum við Hörpu á Geirs­götu þar sem hinn kærði sést hlaupa ásamt hjól­reiða­mönnum, og and­mæli og grein­ar­gerð kærða og full­trúa hans.

Pétur Hrafn Sig­urðs­son, faðir Arnars, skrif­aði grein­ar­gerð­ina, sem lögð var fyrir yfir­dóm­nefnd­ina, fyrir hönd sonar síns. Pétur Hrafn hefur starfað innan íslensku íþrótta­hreyf­ing­ar­innar í fjölda ára og gegnir nú stöðu deild­ar­stjóra hjá Íslenskri get­spá. Í grein­ar­gerð­inni er öllum ásök­unum á hendur Arnari um svindl í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu vísað á bug. Þó við­ur­kennir Pétur Hrafn í grein­ar­gerð­inni að hann og bróðir Arnars hafi hjólað með Arnari hluta hlaups­ins sér til skemmt­unar.

Ekki sannað að Arnar hafi notið aðstoðar í hlaupinu


Yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins við­ur­kennir í nið­ur­stöðu sinni að hjól­reiða­menn hafi fylgt Arnari þrjá fjórðu hluta hlaupa­leið­ar­innar, sem sé vissu­lega óheim­ilt sam­kvæmt reglum Reykja­vík­ur­mara­þons. Dóm­nefnd­inni þótti engu að síður ekki sannað að Arnar hafi notið aðstoðar hjól­reiða­mann­anna og vís­aði því kæru máls­ins frá. Í nið­ur­stöðu dóm­nefnd­ar­innar sagði jafn­framt að borið hafi á því í hlaup­inu að hjólað hafi verið með kepp­endum. "Svo virð­ist sem fylgd á hjólum sé atriði, sem stjórn­endur Reykja­vík­ur­mara­þons þurfi að taka á í fram­tíð­inni. [...] Það er álit yfir­dóm­nefndar að reglur hlaups­ins mætti birta með skýr­ari hætti m.a. í leik­skrá hlaups­ins ásamt því að vara um að brot á þeim geti leitt til brott­vís­unar úr hlaup­inu."

Pétur Sturla undi ekki nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefndar og áfrýj­aði henni til dóm­stóls ÍSÍ. Eftir að kæran barst dóm­stólnum óskaði hann eftir grein­ar­gerð frá yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins. Íþrótta­banda­lag Reykja­víkur (ÍBR) skil­aði inn umbeð­inni grein­ar­gerð yfir­dóm­nefndar Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, en fram­kvæmd hlaups­ins er á ábyrgð ÍBR. Þar segir: "Kæran lýtur að úrslitum í Íslands­meist­ara­móti í mara­þoni sem Reykja­vík­ur­mara­þon tók að sér að fram­kvæmd fyrir hönd Frjáls­í­þrótta­sam­bands Íslands (FRÍ). Slík keppni heyrir undir reglur Alþjóða frjáls­í­þrótta­sam­bands­ins (IAAF) um fram­kvæmd götu­hlaupa og mara­þons sem við lítum svo á að séu reglum hlaups­ins æðri. Yfir­dóm­nefnd hlaups­ins kemst að þeirri nið­ur­stöðu að ekki liggi fyrir sann­anir um að þeir sem hjól­uðu með Arnari Pét­urs­syni hafi veitt honum aðstoð."

Klúðursleg þýðing FRÍ á keppnisreglum IAAF


FRÍ hefur þýtt reglur IAAF yfir á íslensku marg­sinnis und­an­farin ár og birtir þær bæði á ensku og íslensku á heima­síðu sinni. Reglur IAAF varða fyrst og síð­ast keppni á frjáls­í­þrótta­leik­vangi, það er keppn­is­svæði sem venju­lega er afgirt og aðgengi tak­markað við kepp­endur og þá ein­stak­linga sem hafa leyfi til að vera innan svæð­is­ins. Þar af leiðir að ekki er hægt að leggja að jöfnu afmarkað keppn­is­svæði eins og frjáls­í­þrótta­leik­vang ann­ars vegar og hlaupa­braut í kringum Reykja­vík hins vegar.

Í íslenskri þýð­ingu regln­anna, nánar til­tekið í 144. grein um almennar keppn­is­reglur segir um aðstoð, ráð­gjöf eða upp­lýs­ingar: "Hver sá kepp­andi sem veitir eða fær aðstoð innan keppn­is­svæð­is­ins meðan á keppni stendur skal yfir­dóm­ari aðvara og benda á að ef slíkt end­ur­taki sig verði hann gerður leik­rækur." Þá segir enn­fremur í íslenskri þýð­ingu reglna IAAF: "Fyrir til­gang þess­arar reglu er eft­ir­far­andi talið aðstoð og því ekki leyft. a) Leiða hlaup í hlaupum af kepp­endum sem taka ekki þátt í keppn­inni eða ef hlauparar eða göngu­kepp­endur sem hafa verið hring­aðir eða eru um það bil að verða hring­aðir, gera það eða tækni­legum hlutum (nema þeim sem eru leyfð skv. gr. 144.2(g)).

Í reglum IAAF er hvergi kveðið á um blátt bann við fylgd­ar­mönnum á hjólum, enda svo aug­ljóst að hjól­reiða­menn eiga ekk­ert erindi inn á frjáls­í­þrótta­leik­vang að ekki hefur þótt til­efni til að taka það fram.

Ekki verður annað séð en að orða­lag íslensku þýð­ing­ar­innar sé í besta falli ein­kenni­legt, sér í lagi orða­lagið: "Leiða hlaup í hlaupum af kepp­endum sem ekki taka þátt í keppn­inni..." Í sömu grein í reglum IAAF á ensku segir: "For the pur­pose of this rule, the following examp­les shall be considered assistance, and ther­efore not allowed: a) Pacing in races by per­sons not participating in the same race..."

Þýðandi, sem jafn­framt er hlaup­ari, sem Kjarninn ræddi við gerir athuga­semdir við íslenska þýð­ingu reglna IAAF. Hann segir frá­leitt að orðið "pacing" hafi verið þýtt sem "leiða" í íslenskri þýð­ingu FRÍ. Hið rétta sé að orðið pacing merki hraða­stjórnun. Umrædda setn­ingu hefði því átt að þýða: "a) Hraða­stjórn í keppni af hálfu aðila sem eru ekki þátt­tak­endur í við­kom­andi keppni." Reg­in­munur er á aðila og kepp­anda, þar sem hjól­reiða­maður á braut­inni er ekki kepp­andi og þar með und­an­þeg­inn regl­unum. Ef hjól­reiða­maður væri hins vegar skil­greindur sem aðili, það er "per­son" eins og segir í enskri útgáfu reglna IAAF, þá á hann ekk­ert erindi inn á hlaupa­braut­ina.

Sorglegt mál fyrir Arnar Pétursson


Hlauparar sem Kjarninn hefur rætt við í tengslum við málið harma að málið hafi komið upp í tengslum við sigur Arnars Pét­urs­sonar í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu og vona að málið muni ekki hafa nei­kvæð áhrif á feril hans. Arnar sé afbragðs hlaup­ari sem hefði að öllum lík­indum sigrað í hlaup­inu án fylgdar hjól­reiða­manna. Þá hafi verið hægt að kæra úrslit Reykja­vík­ur­mara­þons­ins mörg árin á undan, þar sem fylgd­ar­menn á hjólum hafi verið áber­andi í hlaup­inu und­an­farin ár. Þeirra mat er að Reykja­vík­ur­mara­þon hafi sett reglur sem það geti ekki fram­fylgt, og að klúð­urs­leg þýð­ing á reglum IAAF liggi að baki nið­ur­stöðu dóm­stóls ÍSÍ.

Pétur Sturla Bjarna­son, sem kærði úrslit Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort hann áfrýjar dómi dóm­stóls ÍSÍ til áfrýj­un­ar­dóm­stóls sam­bands­ins. Frestur hans til þess rennur út á þriðju­dag­inn. Hins vegar er ljóst að málið er allt hið vand­ræða­leg­asta fyrir Reykja­vík­ur­mara­þonið og til þess fallið að kasta rýrð á trú­verð­ug­leika hlaups­ins á alþjóða­vísu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár