Segja Ísland stefna í að verða krabbameinslæknalaust

Verður ísland án krabba­meins­lækna árið 2020? Að þessu spyrja sex íslenskir læknar sem hafa nýlokið eða eru í sér­námi í krabba­meins­lækn­ingum í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag. Höf­und­arnir sex eru búsettir í Banda­ríkj­unum, Danmörku og Svíþjóð.Þau segj­ast öll gjarnan vilja snúa heim til Íslands að loknu sér­námi en ef þau geti hvorki séð fyrir sér og sinnt fjöl­skyldum sínum á sam­bæri­legan máta og sam­bæri­legar stéttir með styttra háskóla­nám að baki –að ljúka sér­námi í krabba­meins­lækn­ingum tekur um 15 ár – og þaðan af síður sinnt sjúk­lingum á mann­sæm­andi hátt, eigi þeir erfitt með að sjá fyrir sér að slík end­ur­koma muni eiga sér stað.

Í grein þeirra kemur fram að þriðj­ungur af íslensku þjóð­inni muni grein­ast með krabba­mein á lífs­leið­inni og muni þurfa á að halda lækn­is­að­stoð skurð- og/eða krabba­meins­læknis. Lækn­arnir segja að svo veru­lega hafi hallað undan fæti í íslenska heil­brigð­is­kerf­inu að ekki verði annað hægt að segja en að neyð­ar­á­stand ríki í krabba­meins­lækn­ingum.

Voru 13 árið 2008, eru nú sjö


Í grein þeirra segir: „Á sama tíma og fjöldi sjúk­linga hefur auk­ist, hefur starf­andi krabba­meins­læknum á Íslandi fækkað veru­lega. Árið 2008 voru 13 krabba­meins­læknar starf­andi á Íslandi sem var ekki talið full­nægj­andi á þeim tíma en í dag eru þeir sjö tals­ins. Þetta stafar bæði af því að sér­fræð­ingar hafa kosið að flytja ekki heim að loknu sér­námi og sumir hafa kosið að flytja aftur frá land­inu eftir að hafa kynnst starfs­að­stæðum á Íslandi í nokkur ár. Því hefur álagið auk­ist óheyri­lega á þá sem enn standa vakt­ina og aug­ljós­lega má lítið út af að bregða til að þeir sem eftir starfa hrein­lega kikni undan álag­inu og krabba­meins­lækn­ingar eins og þær leggja sig hrynji. Hvert hafa stjórn­völd þá hugsað sér að senda krabba­meins­sjúk­linga til með­ferðar?

Íslenskir læknar hafa í gegnum tíð­ina þurft að ná sér í sína sér­fræð­ings­menntun í öðrum löndum og flutt út eftir að hafa lokið grunn­nám­inu og komið heim að sér­námi loknu. Síð­ast­liðin 5-10 ár hefur sú breyt­ing orðið á að sér­fræði­læknar ílengj­ast úti þar sem þeim þykja aðstæður á Íslandi ekki aðlað­andi.“

Erum ekki með framúrskarandi heilbrigðiskerfi


Lækn­arnir sex segja það blasa við að það fram­úr­skar­andi heil­brigð­is­kerfi sem íslenskir stjórn­mála­menn hreyki sér oft af sé ekki til staðar og að rétt­ast sé að það verði við­ur­kennt. Það sé svo á ábyrgð Alþingis að ákveða hver for­gangs­röðun skuli vera til fram­tíðar.
„Einn mögu­leik­inn er hrein­lega að lýsa því yfir að héðan í frá sé ekki stefnt að því að íslenskir sjúk­lingar fái sam­bæri­lega þjón­ustu og ger­ist erlendis. Hinn mögu­leik­inn er að reyna að snúa þess­ari óheilla­þróun við. Ef sú verður ekki raunin ætti öllum að vera ljóst að þegar kerfið hrynur sem mun eflaust ger­ast þegar næsti krabba­meins­læknir hættir, þá er það á ábyrgð stjórn­valda þegar krabba­meins­sjúk­lingar þurfa að fara utan til að leita sér lækn­is­að­stoðar.“

Höfundar grein­ar­innar eru Einar Björg­vins­son, Helga Tryggva­dóttir, Ólöf K. Bjarna­dóttir, Sigurdís Har­alds­dóttir, Vaka Ýr Sæv­ars­dóttir og Örvar Gunn­ars­son.

Grein lækn­anna má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár