Vaxtagreiðslur verða 8,1 milljarða króna á næsta ári

Skuld sem íslenska ríkið skuldar Seðla­banka Íslands, og átti að vera gerð vaxta­laus sam­kvæmt fjár­lögum árs­ins 2014, ber nú yfir fimm pró­sent mark­aðsvexti. Höf­uð­stóll hennar hefur á móti verið lækk­aður um 26 millj­arða króna sem gerir það að verkum að vaxta­greiðslur eru lægri en þær væru ef skulda­bréf­inu hefði ekki verið breytt.

Í frétt Kjarnans í gær, sem byggði á fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2015 og svörum þeirra sem koma að mál­inu við fyr­ir­spurnum hans, var sagt að þessar aðgerðir hefðu lækkað vaxta­kostnað rík­is­sjóðs um 8,1 millj­arð króna. Var þar lagt út frá eft­ir­far­andi setn­ingu um að höf­uð­stólslækk­unin hefði „ þau áhrif að vaxta­kostn­aður af bréf­inu verður lægri en ella hefði orðið, eða 8,1 mia.kr. á árinu 2015“.

Hið rétta er að vaxta­kostn­aður rík­is­ins vegna bréfs­ins verður 8,1 millj­arður króna á árinu 2015, um 300 millj­ónum krónum lægri en hann verður í ár og að minnsta kosti 2,6 millj­örðum krónum lægri en hann hefði verið ef upp­haf­legum skil­málum skulda­bréfs­ins hafði ekki verið breytt. Fjárlög árs­ins 2015 hefði því ekki orðið nei­kvæð án skuld­breyt­ing­ar­innar.

Náðist ekki sátt um upprunalegu leiðina


Þegar fjár­laga­frum­varp árs­ins 2014 var kynnt var lagt upp með að skil­málar skulda­bréfs sem íslenska ríkið skuldar Seðla­banka Íslands, sem veitt var vegna end­ur­fjár­mögn­unar Seðla­bank­ans eftir hrunið, yrðu end­ur­skoð­aðir þannig að lengt yrði í bréf­inu til 20 ára og það gert vaxta­laust.Bréfið bar áður rúm­lega tveggja pró­senta verð­tryggða vexti. Þetta átti að lækka vaxta­kostnað rík­is­ins um 10,7 millj­arða króna á þessu ári. Þessi eina aðgerð átti því að orsaka um helm­ing útgjald­ar­lækk­unar rík­is­ins á árinu 2014.

Ekkert varð af þess­ari aðgerð, þótt að aldrei hafi verið til­kynnt um það opin­ber­lega. Heim­ildir Kjarnans herma að það hafi ein­fald­lega ekki náðst sátt um það milli ríkis og Seðla­banka. Þess í stað héld­ust vext­irnir óbreyttir fram að síð­ustu ára­mótum. Þess í stað var ákveðið að skuldin yrði lækkuð um 26 millj­arða króna og eigið fé Seðla­banka Íslands myndi lækka um sömu fjár­hæð á móti. Þessir 26 millj­arðar voru auk þess skráður sem arður til rík­is­ins frá Seðla­bank­anum og auka því tekjur rík­is­sjóðs á árinu 2014 gríð­ar­lega.

Vaxta­kostn­aður rík­is­ins náði hins vegar ekki að lækka um 10,7 millj­arða króna á þessu ári líkt og lagt var upp með. Þess í stað var hann 8,4 millj­arða króna ,eða 2,3 millj­örðum krónum lægri en sú upp­hæð sem átti að spar­ast. Þetta skipti þó ekki máli því arð­greiðsla Seðla­bank­ans og auknar aðgreiðslur ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja, aðal­lega Lands­bank­ans, gerðu það að verkum að arð­greiðslur rík­is­ins í ár verða 46 millj­örðum krónum hærri en fjár­laga­frum­varpið lagði upp með. Því skap­að­ist ekki halli á rík­is­rekstr­inum vegna þessa.

Vaxtakostnaður lækkaði um 300 milljónir


Samhliða var samið um að skulda­bréfið, sem stendur í 145 millj­örðum króna eftir lækk­un­ina, myndi bera mark­aðsvexti, sem eru yfir fimm pró­sent. Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2015 segir að höf­uð­stóll skulda­bréfs­ins hafi verið lækk­aður „um 26 mia.kr. í 145 mia.kr. en það hefur þau áhrif að vaxta­kostn­aður af bréf­inu verður lægri en ella hefði orðið, eða 8,1 mia.kr. á árinu 2015“.

Kjarninn lagði þann skiln­ing í þetta að vaxta­kostn­aður hefði lækkað um 8,1 millj­arð króna vegna aðgerð­ar­innar. Það er ekki rétt heldur lækk­aði hann um 300 millj­ónir króna, úr 8,4 millj­örðum króna. Beðist er vel­virð­ingar á þeim mis­skiln­ingi.

Það er hins vegar ljóst að arð­greiðslan og nið­ur­færslan á lán­inu lækkar vaxta­greiðslur um nokkra millj­arða króna, bæði í fyrra og í ár. Miðað við vaxta­greiðslur rík­is­ins af lán­inu 2013 þá greiðir ríkið 2,3 millj­örðum krónum minna af því í ár og að minnsta kosti 2,6 millj­örðum krónum minna á næsta ári. Miðað við það hefði afgang­ur­inn af fjár­lög­unum næsta árs verið 1,5 millj­arðar króna í stað 4,1 millj­arðs króna líkt og lagt var upp með.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár