Mögnuð heimsókn til Spotify - Aldrei kreppa í tónlist

Á dög­unum heim­sótti Kjarninn höf­uð­stöðvar Spotify í Stokk­hólmi við Birger Jarls­götu. Það var skemmti­legt og áhuga­vert. Ekki síst af því að maður telur sig þekkja Spotify út og inn, það er þjón­ust­una sem slíka. Sem kúnni og not­andi hug­bún­að­ar­ins á hverjum degi. En það var erfitt að ímynda sér hvað þetta er magnað fyr­ir­tæki og hvað upp­gang­ur­inn hefur verið hraður.

Fyrir utan skrif­stof­urnar var skilti þar sem því var fagnað að fjöldi með Premium áskrift (áskrift sem veitir fullan aðgang að allri tón­list á Spotify) á heims­vísu væri nú 10 millj­ónir. Sé miðað við 10 dali í kostnað á mán­uði fyrir hverja áskrift, þá gerir það fjár­streymi upp á 100 millj­ónir dala á mán­uði, eða sem nemur um 12 millj­örðum á mán­uði. Það gerir 144 millj­arðar á ári. Spotify sam­fé­lagið stækkar hratt og umfangið með.

Nokkrir punktar sitja í manni eftir þessa heim­sókn, sem ég deili hér með ykkur. Spotify er eitt allra árang­urs­mesta frum­kvöðla­fyr­ir­tæki í sögu Norð­ur­land­anna.

- Um 70 pró­sent af inn­kom­unni fer til tón­list­ar­iðn­að­ar­ins. Útgáfu­fyr­ir­tækin taka lang­mest til sín, á meðan tón­list­ar­fólkið fær minna beint. Það hefur verið mikið debate í gangi um þetta, og verður eflaust alltaf. En heilt yfir þá er Spotify stofnað bein­línis vegna þess að það var fyrir hendi vanda­mál á mark­aði með tón­list vegna ólölegs nið­ur­hals ekki síst og síminnk­andi tekna af sölu á diskum og slíkum varn­ingi.

- Fyr­ir­tækið vinnur eftir þeirri aðferð­ar­fræði að upp­lýsa alla starfs­menn mjög ítar­lega um allt sem stjórn­endur eru að hugsa og halda reglu­lega fundi í stórum sal (hann var hrika­lega flottur!) þar sem farið er yfir hvar fyr­ir­tækið er statt og hvert það er að fara. Sá sem fór með okkur um fyr­ir­tækið sagði það vera magnað að allir héldu trúnað um þessi mál, og væru með­vit­aðir um að margt sem væri verið að ræða og kynna væri við­kvæmt. Þetta hljómar kannski svipað og gert er í öðrum fyr­ir­tækjum, en það er það ekki, eins og þessu var lýst fyrir okkur. Þetta er mun ítar­legra en gengur og ger­ist. Stjórn­end­urnir ná að hugsa upp­hátt, svo að segja. Stefnan verður lif­andi og allir starfs­menn taka virkan þátt í henni.

- Starfs­manna­hópnum er skipt upp í teymi sem vinna saman að öllum mark­miðum, og hafa sjálf­stæði um hvernig farið er að, innan þess ramma sem verk­efni þeirra marka. Þetta var mjög flott og setti mik­inn svip á vinnu­stað­inn; teymi að störfum hér og þar, svo­lítið afmörkuð frá hinum stundum en opin fund­ar­rými tengdu svæðið saman (hönn­unin á öllu var auð­vitað mögnuð, og mikið lagt í starfs­að­stöð­una, leik­her­bergi fyrir krakka starfs­manna og slíkt. Ævin­týra­legt magn örbylgju­ofna, Svíar eru víst óðir í örbylgju­mat! Fólki verður að líða vel í vinn­unni, góður frasi það).

- Spotify var launch-að í októ­ber 2008. Þá var svona dass óvissa á mörk­uðum og óljóst rekstr­ar­um­hverfi. Nú, sex árum síðar, er ljóst að þetta var afar góð tíma­setn­ing og ekki til­viljun. Stra­tegían var að vera on top of things þegar snjall­síma- og spjald­tölvu­bylt­ingin færi um heim­inn; vaxa með henni. Svo má nú segja, að þó partý­inu hafi lokið hjá bönk­unum í októ­ber 2008 - eða í það minnsta hjá mörgum þeirra - þá hélt tón­listin áfram að hljóma. Fólk hefur alltaf áhuga á tón­list, það er aldrei nein kreppa í henni.

- Mikið er lagt upp úr því hjá Spotify að rétta fólkið sé ráðið í vinnu. Mjög miklar kröfur eru gerðar til for­rit­ara og strangt kerfi sett upp við ráðn­ingar, sem á að passa upp á að gott fólk sé ráðið. Til marks um það, þá hefur fyr­ir­tækið aldrei sagt upp starfs­manni! Ef hlut­irnir eru ekki að ganga, þá er unnið með fólk­inu og vanda­málin greind. Styrk­leikar fólks eru mis­mun­andi og Spotify telur að fólkið hljóti að vera nógu gott fyrst það komst í gegnum nál­ar­augað. Starfs­manna­veltan er því minni en gengur og ger­ist, þó vita­skuld hætti alltaf ein­hverjir, t.d. vegna flutn­inga, nýrra starfa eða náms. En þá er passað upp á að sá sem komi í stað­inn sé jafn góður eða betri. Með þessu móti tekst að búa til gríð­ar­lega þéttan hóp, góðan móral, metnað og sam­fé­lags­lega hugsun; þá sömu og Spotify leggur upp með að við­skipta­vinir finni fyrir; að þeir séu hluti af Spotify-sam­fé­lag­inu.

- Eftir að heim­sókn­inni lauk var ég mjög hugsi yfir því hvað þetta getur raun­veru­lega orðið stórt fyr­ir­tæki, einkum og sér í lagi útaf einu; gögnum og not­enda­upp­lýs­ingum. Spotify veit hvað umheim­ur­inn er að hlusta á, við allar mögu­legar aðstæður, út frá aldri, stöðu, áhuga­málum, stað­setn­ingu og fleiri smá­at­riðum. Margt smátt gerir eitt stórt þegar að kemur að gögn­unum. Fyr­ir­tækið er varla byrjað að nýta sér þetta að neinu marki, en það má rétt ímynda sér hvaða áhrif það getur haft á tón­list­ar­iðn­að­inn til fram­tíðar, þegar byrjað er að greina Spotify-sam­fé­lagið ofan í dýpstu rætur. Núna eru starfs­menn að störfum á átján stöðum um allan heim og þeim fjölgar hratt. Það mun ekki líða á löngu þar til nýjar vörur koma fram á sjón­ar­sviðið frá þessu magn­aða fyr­ir­tæki.

(Þessar pæl­ingar birt­ust fyrst inn á Facebook síð­unni minni, en það er alveg eins gott að deila þeim með les­endum Kjarnans. Ég læt hér fylgja með einn góðan Spotify-laga­lista sem ég kalla mánu­dag. Mik­il­vægt að sá listi gefi réttan tón fyrir vik­una).

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár