Seðlabankaskuld breytt til að tryggja hallalaus fjárlög

Til að ná fram halla­lausum fjár­lögum í ár, 2014, og á næsta ári, 2015, var skuld rík­is­ins við Seðla­banka Íslands lækkuð um 26 millj­arða króna án þess að greiðsla hefði borist fyrir. Sú aðgerð gerði það að verkum að millj­arð­arnir 26 telj­ast sem arð­greiðsla í rík­is­reikn­ingi 2014 og eykur þar með tekjur rík­is­ins um þá upp­hæð. Lækkun skuld­ar­innar gerir líka það að verkum að vaxta­greiðslur rík­is­ins lækka um 8,1 millj­arð króna á árinu 2015.

Án þess­arar breyt­ingar yrðu fjár­lögin, eins og þau voru kynnt í fjár­laga­frum­varp­inu, nei­kvæð um fjóra millj­arða króna. Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2015. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið stað­festi aðgerð­ina í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Arðgreiðslur hækkuðu um 45,8 milljarða


Í fjár­lögum árs­ins 2014 var gert ráð fyrir að tekjur rík­is­sjóðs af arði og end­ur­mati eign­ar­hluta ættu að vera 11,1 millj­arðar króna. Í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar, sem kynnt var í síð­ustu viku, er hins vegar birt ný áætlun fyrir árið 2014. Þar er gert ráð fyrir að arð­greiðslur á þessu ári hækki um 45,8 millj­arða króna og verði alls 56,9 millj­arðar króna.

Ástæðan fyrir þess­ari gríð­ar­legu hækkun útskýrist meðal ann­ars af því að Lands­bank­inn greiddi rík­is­sjóði 19,7 millj­arða króna í arð á árinu en búist hafði verið verið að heild­ararð­greiðsla frá við­skipta­bönk­unum sem ríkið á hlut í yrði sex millj­arðar króna. Stærsta breyt­ingin varð hins vegar sú að arð­greiðsla frá Seðla­banka Íslands fór úr tveimur millj­örðum króna í 32,5 millj­arða króna. Þar skipti mestu liður sem kall­ast end­ur­mat á skulda­bréfi rík­is­sjóðs og jók tekjur rík­is­ins um 26 millj­arða króna. Aðgerðin lækk­aði einnig skulda­hlut­fall rík­is­ins.

Þessi aðgerð er útskýrð í fjár­laga­frum­varp­inu með þeim hætti að vegna áform­aðra breyt­inga á við­miðum „um eigið fé, arð­greiðslur og inn­kall­an­legt eigið fé Seðla­banka Íslands gefst svig­rúm til að lækka höf­uð­stól skulda­bréfs­ins um 26 mia.kr. í 145 mia.kr. en það hefur þau áhrif að vaxta­kostn­aður af bréf­inu verður lægri en ella hefði orðið, eða 8,1 mia.kr. á árinu 2015“.

Bókhaldsleg aðgerð


Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um málið og spurði hvort það væri réttur skiln­ingur að höf­uð­stóll skulda­bréfs­ins hefði verið lækk­aður um 26 millj­arða króna á nþess að nokkur greiðsla hefði borist. Í skrif­legu svari ráðu­neyt­is­ins segir: „Hér er ann­ars vegar um að ræða skulda­bréfið sem er eign Seðla­bank­ans og hins vegar eigið fé Seðla­banka Íslands sem er skuld SÍ við rík­is­sjóð. Það sem á að ger­ast er að eigið fé Seðla­bank­ans verður lækkað um 26 mia.kr. og and­virði þess notað til að greiða inn á skulda­bréfið“.

Semsagt, eigið fé Seðla­bank­ans var lækkað um 26 millj­arða króna og það notað til að greiða niður skuld við ríkið, sem not­aði það á móti til að greiða niður skulda­bréf við Seðla­bank­ann ,sem bók­færð var sem arður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár