Drukkna á flótta

Talið er að fjór­falt fleiri hafi dáið á ferð sinni yfir Mið­jarð­ar­haf á leið til Evrópu það sem af er þessu ári sam­an­borið við allt árið 2013. Óttast er að margir þeirra tvö hund­ruð þús­und flótta­manna sem haf­ast nú við í Norður-Líbíu muni grípa til sömu örþrifa­ráða og reyna að kom­ast yfir hafið, þá helst til Ítalíu. Þar af er talið að sjö þús­und manns leiti nú ljósum logum að neyð­ar­út­gangi frá Líbíu vegna átak­anna þar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Alþjóða­sam­tökum um fólks­flutn­inga (IOM).

Í októ­ber í fyrra drukkn­uðu fleiri en 360 skammt frá eynni Lampedusa við Ítalíu. Í kjöl­farið kynntu ítölsk stjórn­völd nýja aðgerða­á­ætlun fyrir strand­gæsl­una, Mare Nostrum, sem Evr­ópu­sam­bandið styrkir fjár­hags­lega.

Síðan þá hefur ítalska strand­gæslan lagt kapp á að komið verði til móts við flótta­fólk áður en slys verða og það flutt um borð í örugg skip. Dæmi eru um að strand­gæslan hafi tekið við fimm þús­und manns með þessum hætti á innan við viku. Það sem af er þessu ári hefur strand­gæslan tekið á móti rúm­lega sex­tíu þús­und sjó­ferða­löngum, sem margir voru um borð í skipum um það bil að sökkva. Sumir hafa reynt að kom­ast yfir á ofhlöðnum gúmmí­bátum.

Þrátt fyrir að ítalska strand­gæslan hafi nú þegar komið í veg fyrir mörg slys telur IOM að strand­gæslan hafi aðeins tekið á móti helm­ingi þeirra sem hafi lagt leið sína yfir til Ítalíu sjó­leiðis. Stjórn­völd á Möltu ótt­ast að ein­hver þeirra hund­ruða líka sem eru nú í sjónum séu smituð ebólu­veirunni. Þetta hefur tor­veldað leitar- og björg­un­ar­starfi. Tryggja þarf að starfs­menn fái við­eig­andi þjálfun og búnað til að draga úr líkum á að þeir smit­ist.

Glæpamenn hagnast


Sjöfalt fleiri reyndu að kom­ast ólög­lega yfir til Ítalíu fyrsta árs­fjórð­ung þessa árs miðað við sama tíma­bil í fyrra sam­kvæmt skýrslu landamæra­stofn­unar Evr­ópu­sam­bands­ins, Frontex. Þetta megi að stórum hluta rekja til þess að glæpa­hringir hagn­ist á örbirgð og ótta flótta­fólks. Þessir hópar skipu­leggi ferðir yfir Mið­jarð­ar­haf gegn greiðslu. Því fleiri sem kom­ist um borð í hvern bát, því meira fé fái eig­end­urnir. Far­þeg­arnir séu flestir grun­lausir um áhætt­una sem fylgi þessum sjó­ferðum.

Samkvæmt Frontex eru flestir flótta­menn­irnir auk þess upp til hópa skil­ríkis- og land­lausir og hafi þar af leið­andi fáa val­kosti. Fjöldi Sýr­lend­inga hafi til að mynda flúið gagn­gert til Líbíu til að nýta sér sjó­leið­ina til Evrópu. Talið er að sumir smyglar­anna sökkvi bát­unum vilj­andi til að fela slóð sína.

Forza Italia, stjórn­mála­flokkur Silvios Berlusconis, er meðal þeirra sem hefur gagn­rýnt rík­is­stjórn Ítalíu fyrir að halda úti Mare Nostrum áætl­un­inni. Verk­efnið hafi þver­öfug áhrif því hún laði að sér flótta­fólk þegar strand­gæslan sjái um að koma því yfir til Sikil­eyjar heilu á höldnu. Hún hafi því aðeins auka­kostnað í för með sér fyrir Ítalíu, sem borgi um tvo millj­arða króna á mán­uði til að reka Mare Nostrum.

Algjört stjórnleysi í Líbíu


Flótta­menn frá Egypta­landi, Sýrlandi, Sómalíu, Erítreu, Súdan og hinum ýmsu Vestur- og Mið-Afr­íku­ríkjum haf­ast við í Norður-Líbíu. Þeir eru í sér­stökum áhættu­hópi vegna harðn­andi átaka sem eru þau verstu frá því Muammar Gaddafi, ein­ræð­is­herra, var steypt af stóli árið 2011. Þar berj­ast nú þeir sömu hópar og komu Gaddafi frá inn­byrðis um völd.

Upp­reisn­ar­menn frá borg­inni Mistrata tóku öll völd í höf­uð­borg­inni Trípóli og hafa sett á fót sína eigin rík­is­stjórn. Þing og rík­is­stjórn Líbíu hefur leitað skjóls í borg­inni Tobruk í austri. Í ágúst­lok brut­ust svo út blóðug átök milli rót­tækra hreyf­inga Ísla­mista og skæru­liða sem voru hlið­hollir Gaddafi, en segj­ast nú berj­ast með rík­is­stjórn Líbíu, í Benghazi. Því ríkir algjört neyð­ar­á­stand í land­inu sem ótt­ast er að muni versna mjög hratt á næstu vikum.

Hjálp­ar­starfs­menn á vegum IOM hafa unnið að því að koma flótta­fólki í skjól og hefur mörgum verið vísað til nágranna­rík­is­ins Túnis.

„Ef við hjálpum ekki þeim sem vilja snúa heim til sín örugg­lega gætu margir hætt á að fara um borð í ótrygga báta í þeirri von að kom­ast í öruggt skjól á Ítalíu,“ segir Othman Belbeisi, yfir­maður IOM í Líbíu.

Talið er að smygl­arar leiti uppi mennt­aðar fjöl­skyldur sem hafi ein­hvern gjald­eyri eða verð­mæti til að greiða far­gjaldið. Tíma­ritið Intelli­g­ent Life greindi í sumar frá dæmi um sýr­lenska fjöl­skyldu sem greiddi 100 þús­und krónur á mann fyrir farið. Hún gat ekki greitt gjaldið fyrir alla og því varð elsti son­ur­inn eftir í Líbíu.

Dauða­ferð yfir Mið­jarð­ar­hafið

Flestir þeirra báta sem eru gerðir út frá Líbíu eru á mörkum þess að telj­ast sjó­hæfir. Eig­end­urnir senda flótta­fólk út í opinn dauð­ann gegn hárri greiðslu. Hér eru nokkur dæmi um alvar­leg sjó­slys:

27 mars 2009


Gamall fiski­bátur með 250 menn inn­an­borðs sekkur skammt frá Líbíu. Bjargað var 21 manni. Tveir aðrir bátar týnd­ust á sömu leið og ekki vitað um afdrif þeirra.

6 apríl 2011


Talið er að 150 manns hafi látið lífið þegar bátur sökk nærri Lampedusa á leið frá Líbíu. Ítalska strand­gæslan fann aðeins 20 lík.

3 október 2013


Bátur sekkur skammt frá eynni Lampedusa út frá Ítalíu. 155 flóta­mönnum er bjargað úr sjónum en að minnsta kosti 360 fór­ust, flestir frá Eritreu, Sómalíu og Gana.

11 október 2013


Bátur með fleiri en 200 flótta­mönnum frá Sýrlandi og Palest­ínu sekkur. 35 drukkna að minnsta kosti. Farið er með lif­endur til Möltu og Ítalíu.

30 apríl 2014


Fjörutíu manns, flestir frá Sómalíu, drukkna skammt frá höf­uð­borg Líbíu, Trípóli. Einn maður kemst lífst af.

6 maí 2014


Talið er að 77 hafi drukknað skammt frá strönd Líbíu eftir að bátur sökk eftir um þrjá­tíu mín­útna sigl­ingu. Líbíska strand­gæslan náði að bjarga 53 úr sjónum.

22 agúst 2014


Óttast er að allt að 250 hafi farist þegar bátur sökk innan land­helgi Líbíu á leið til Ítalíu. Líbíska strand­gæslan fann ekki lík flestra far­þeg­anna en tókst að bjarga lífi sextán manna.

24 ágúst 2014


Að minnsta kosti 25 láta lífið í tveimur sjó­slysum. Ítalska strand­gæslan bjargar um 370 manns sem höfðu verið um borð í öðru skip­anna.

7-14 september 2014


Talið er að smygl­arar hafi sökkt vilj­andi bát með 500 flótta­mönnum inn­an­borðs skammt frá Möltu. Óljóst er hvenær atburð­ur­inn átti sér stað en lög­reglan á Ítalíu og Möltu rann­saka hann sem fjöldamorð.

14 september 2014


Bátur sekkur austur af Trípólí. Að minnsta kosti 250 eru taldir af en 36 far­þegum var bjargað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár