Geta selt Íslandsbanka til asískra fjárfesta á níu mánuðum

Mikill áhugi er á meðal asískra fjár­festa að kaupa hlut slita­stjórnar Glitnis í Íslands­banka, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Hópurinn sem sýnt hefur mestan áhuga er leiddur af aðilum í Hong Kong sem eiga hlut í mörgum fjár­mála­fyr­ir­tækjum víða um heim og hafa reynslu af fjár­magns­höftum, sem eru við lýði á Íslandi. Fjár­fest­arnir vilja hins vegar ekki kaupa bank­ann nema með vel­þóknun íslenskra stjórn­valda. Auk þess þurfi ríkið að koma að söl­unni, meðal ann­ars til að útskýra hvers konar hömlur yrðu settar á arð­greiðslur bank­anna til erlendra eig­enda. Auk þess þarf að taka póli­tíska afstöðu til þess hvort vilji sé til að selja íslenskan banka til slíkra fjár­festa. Slík aðkoma hefur ekki átt sér stað og því stendur málið fast.

Ef vilji er til og sam­starf næst við íslensk stjórn­völd telja þeir sem að mál­inu koma að hægt yrði að ljúka slíkri sölu á níu mán­uðum.

Einnig áhugi á Arion banka


Stærstu íslensku eignir þrota­bú­anna eru Íslands­banki og Arion banki. Mikill vilji er innan slita­stjórna þeirra að selja þá fyrir gjald­eyri. Þannig væri hægt að greiða út sölu­and­virðið til kröfu­hafa án þess að það hefði áhrif á greiðslu­jöfnuð Íslands.

Erlendir aðilar hafa einnig lýst yfir áhuga á að kaupa hlut þrota­bús Kaup­þings í Arion banka. Form­legar við­ræður eru ekki hafnar en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans er meðal ann­ars um að ræða fjár­mála­fyr­ir­tæki í Skand­in­avíu. Slík sala yrði þó, líkt og í til­felli Íslands­banka, alltaf hluti af nauða­samn­ings­upp­gjöri og verður ekki að veru­leika fyrr en fyrir liggur póli­tísk ákvörðun um að heim­ila hana.

Fréttin er hluti af ítar­legri umfjöllun Kjarnans um losun fjár­magns­hafta sem birt­ist í síð­ustu útgáfu hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár