Telja framkvæmdastjórn um losun hafta klofna

Fram­kvæmda­stjórn um losun fjár­mags­hafta, sem skipuð var af stjórn­völdum í júlí síð­ast­liðnum, ­hefur und­an­farið fundað með slita­stjórnum ­Glitnis, Lands­bank­ans og Kaup­þings, sem fara með þessi þrjú stærstu þrotabú Íslands­sög­unnar. Um er að ræða fyrstu form­legu fundi sem full­trúar stjórn­valda hafa átt með þeim vegna mögu­legrar los­unar á fjár­magns­höftum sem sett voru síðla árs 2008.

Í fram­kvæmda­stjórn um losun fjár­magns­hafta sitja Glenn Victor Kim, fjár­mála­ráð­gjafi hjá LJ Capital, sem leiðir verk­efnið, Benedikt Gíslason ráð­gjafi, Eiríkur Svav­ars­son hæsta­rétt­ar­lög­maður og Freyr Her­manns­son, for­stöðu­maður fjár­stýr­ingar Seðla­banka Íslands. Fram­kvæmda­stjórnin heyrir undir stýrinefnd sem leidd er af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Tveir skólar eru ráð­andi um það hvernig eigi að ljúka skiptum búanna. Annar gengur út á að gera það með því að semja við slita­stjórnir föllnu bank­anna og kröfu­hafa þeirra um að gera slíkt án þess að nauða­samn­ingar ógni greiðslu­jöfn­uði Íslands. Hin leiðin er svokölluð gjald­þrota­leið, sem gengur út á að knýja búin í þrot og að dótt­ur­fé­lag Seðla­banka Íslands eða skipta­stjóri verði lát­inn taka yfir eignir þeirra og þær síðan seldar til nýrra eig­enda. Afrakstr­inum verði skipt milli kröfu­hafa og þeir myndu fá allt sitt greitt í íslenskum krónum.

Samkvæmt þeim við­mæl­endum Kjarnans sem setið hafa fundi með fram­kvæmda­stjórn­inni virð­ist helm­ingur hennar, Kim og Benedikt, vera á því að semja en hinn helm­ing­ur­inn, Freyr og Eiríkur, vera hrifn­ari af gjald­þrota­leið­inni.

Mega ekki ógna greiðslujöfnuði


Slita­stjórnir Kaup­þings og Glitnis sóttu um und­an­þágu­heim­ild frá fjár­magns­höftum síðla árs 2012 til að ljúka nauða­samn­ingum sínum. Seðla­bank­inn hefur sagt að ekki séu for­sendur til að ljúka nauða­samn­ingi með þeim hætti sem sóst var eftir. Frum­for­senda þess að hægt sé að ljúka slíkum samn­ingum sé að fyrir liggi nákvæm grein­ing á eignum og end­ur­heimtum þrota­bú­anna með til­liti til áhrifa á útgreiðslu þeirra til kröfu­hafa á greiðslu­jöfnuð Íslands.

Slita­stjórn­irnar töldu sig hafa fengið skil­boð um að í þess­ari viku yrðu lagðar fyrir þær upp­lýs­ingar um hvers konar skil­yrði stjórn­völd teldu að þær þyrftu að upp­fylla þannig að greiðslu­jöfn­uði yrði ekki ógnað. Á fund­unum með fram­kvæmda­stjórn­inni kom hins vegar fram að ekk­ert slíkt stendur til strax.

Fréttin er hluti af ítar­legri umfjöllun um losun fjár­magns­hafta sem birt­ist í síð­ustu útgáfu Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár