Adrenalínfíkill kveður NATÓ

Anders Fogh Rasmus­sen stýrði sínum síð­asta leið­toga­fundi sem fram­kvæmda­stjóri Atl­ants­hafs­banda­lags­ins NATO á dög­unum. Hann hefur sett svip sinn á NATO og per­sónu­gert upp­lýs­inga­stefnu stofn­un­ar­innar án for­dæma.
Ráð­gjafar hans hafa lagt þunga áherslu á að Anders Fogh komi fyrir sjónir sem and­lit stofn­un­ar­innar út á við. Hann sé sterkur leið­togi hjá NATO en jafn­framt athafna­söm per­sóna sem hiki ekki við að deila jákvæðum sögum úr einka­lífi sínu með fylgj­endum á sam­fé­lags­miðlum.

Vinsælasti leiðtoginn


Í stað þess að taka fyrir þung og erfið álita­mál hefur ­Anders Fogh mýkt ímynd stofn­un­ar­innar svo um munar. Þetta hefur gert hann að vin­sælasta leið­toga alþjóða­stofn­unar á sam­fé­lags­miðlum, með 142 þús­und fylgj­endur á Facebook og 200 þús­und á Twitter. Til sam­an­burðar er Herman van Rompuy, leið­togi ráð­herra­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, aðeins með 35 þús­und fylgj­endur á Facebook.
Anders Fogh hefur gert það að algjöru for­gangs­máli að skapa jákvæða ímynd af NATO þar sem hann sjálfur hefur verið í for­grunni. Hágæða­ljós­myndir eru birtar á Facebook, Twitter og ljós­mynda­síð­unni Flickr af fundum hans með þjóð­ar­leið­togum um víða ver­öld. Þá sýna ráð­gjafar hans alheim­inum sömu­leiðis hann reglu­lega á morg­unskokki, hjól­reiðum eða jafn­vel í flúða­sigl­ingum eða fall­hlífa­stökki. Anders Fogh sendir sömu­leiðis reglu­lega frá sér víd­eó­blogg á YouTube þar sem hann fjallar gróf­lega um efn­is­at­riði hvers fundar og stefnu­mál.

Valin upplýsingaleynd


Hernaður hefur orðið undir í þess­ari nýju upp­lýs­inga­stefnu NATO. Þess í stað er áhersla lögð á sýni­leika borg­ara­legra verk­efna stofn­un­ar­innar, stjórn­mála­leg tengsl og áhrif. Myndir af átaka­svæðum heyra til algjörra und­an­tekn­inga og sýna þá aðeins borg­ara­lega starf­semi eða vina­lega ímynd af her­mönnum NATO. Lyk­il­orðið „varn­ar­banda­lag“ er haft að leið­ar­ljósi og forð­ast að „hern­að­ar­banda­lag“ liti umræð­una. Mjúkar áherslur eru meira að segja í fyr­ir­rúmi nú þegar NATO stendur frammi fyrir borg­ara­styrj­öld í Austur-Úkraínu.
Þrátt fyrir að NATO hafi sett auk­inn kraft í almanna­tengsl finn­ast litlar sem engar upp­lýs­ingar um mik­il­væg mál­efni á vef­svæði stofn­un­ar­innar, svo sem fjár­veit­ingar til ákveð­inna mála­flokka og starfs­manna­hald. Kostnaði við skrif­stofu og laun fram­kvæmda­stjór­ans er til að mynda haldið leyndum.

Borg­ara­leg verk­efni fengu úthlutað 33,4 millj­örðum króna sam­kvæmt fjár­lögum NATO árið 2014. Þessi fjár­laga­liður nýt­ist meðal ann­ars til að greiða launa­kostnað alþjóð­legs starfs­fólks höf­uð­stöðva NATO í Brussel. Síðustu ár hefur um fimmt­ungi til fjórð­ungi þessa útgjalda­liðs verið varið í upp­lýs­inga­mál. Hern­að­ar­hluti NATO fékk að sama skapi 215 millj­arða króna árið 2014. Ísland greiðir 265 millj­ónir króna til NATO sam­kvæmt fjár­lögum þessa árs, lang­minnst allra aðild­ar­ríkja þess.
Sú upp­lýs­inga­stefna sem Anders Fogh hefur rekið hjá NATO hefur þar af leið­andi engan veg­inn end­ur­speglað verka­skipt­ingu og raun­veru­legt hlut­verk stofn­un­ar­innar, sem er mun frekar hern­að­ar­legt heldur en borg­ara­legt.

Ósýnilega höllin


Meðal áhuga­verð­ustu ímynd­ar­verk­efna Anders Fogh er bygg­ing nýrra höf­uð­stöðva NATO í Brussel. Lögð er áhersla á jákvæða frá­sögn og fram­tíð­ar­mögu­leika NATO þrátt fyrir gríð­ar­legan umfram­kostnað og tafir við verk­efnið.
Eftir útboð verks­ins var ­samn­ingur gerður við verk­tak­ann BAM Alliance árið 2010 sem átti lægsta boð, 71 millj­arð króna. Fjár­hags­erf­ið­leikar BAM ­Alliance og mis­reikn­ingar hafa verið ræddir inn­an­húss í NATO og að raun­kostn­aður við bygg­ing­ar­fram­kvæmd­irnar geti orðið 30 millj­örðum hærri. Áætlaður heild­ar­kostn­aður NATO við bygg­ing­una og flutn­inga í nýtt hús­næði var 115 millj­arðar króna, en ótt­ast er að hann fari fram úr heim­ildum sem voru 155 millj­arðar króna.
BAM Alliance átti upp­haf­lega að skila bygg­ing­unni af sér í byrjun árs 2015, en nú bendir allt til þess að fram­kvæmdin drag­ist um allt að tvö ár.

Nýju höf­uð­stöðv­arnar eru ágætt dæmi um hvernig NATO hefur reynt að hylma yfir nei­kvæða umfjöllun um fjár­mál og önnur mál­efni stofn­un­ar­innar.

Stuðningur í Danmörku


Anders Fogh nýtur ennþá mik­illa vin­sælda í Danmörku og hefur stuðn­ings­hópur hans kallað eftir því að hann snúi aftur sem hugs­an­legur arf­taki Lars Løkke Rasmus­sen, for­manns stjórn­mála­flokks­ins Venstre. Flokk­ur­inn heldur lands­þing fjórða til fimmta októ­ber og er almenn óánægja með Lars Løkke, sem 37 pró­sent Dana telja óhæfan til að verða for­sæt­is­ráð­herra.
Anders Fogh var leið­togi Venstre og for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur á einu stærsta gull­ald­ar­skeiði flokks­ins frá 2001 til 2009. Nú vill Venstre kom­ast aftur til valda og koma vinstri­st­jórn­inni frá. Á föstu­dag úti­lok­aði Anders Fogh í við­tali við TV2 að hann ætti aft­ur­kvæmt í dönsk stjórn­mál.

„Þann fyrsta októ­ber byrjar nýtt líf. Ég hef ekki tekið neina end­an­lega ákvörðun um hvað verður svo gert. En ég vil gjarnan slá tvennu föstu við. Ég hef hvorki áform um að snúa aftur í dönsk stjórn­mál né um að verða eft­ir­launa­þegi,“ sagði hann.

Jens fyllir skóna


Jens Stol­ten­berg, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Noregs, verður arf­taki Anders Fogh sem fram­kvæmda­stjóri NATO. Hann hefur sömu­leiðis verið afar áhuga­samur um að nýta sér nýmiðla til að vekja athygli á störfum sínum. Hann fór óhefð­bundna leið fyrir þing­kosn­ing­arnar í Noregi í fyrra þegar hann keyrði leigu­bíl í einn dag til að kynn­ast kjós­endum, en var gagn­rýndur fyrir að nota aug­lýs­inga­stofu til að skipu­leggja við­burð­inn.

Jens er 55 ára og áhuga­maður um úti­vist, hlaup, fjall­göngur og skíða­mennsku og mun því falla vel í mynstrið í þeirri upp­lýs­inga­stefnu sem Anders Fogh ýtti úr vör, með tvö­falt fleiri fylgj­endur á sam­fé­lags­miðlum í far­artesk­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár