Haftahópur ­búinn að funda með slitastjórnum

Fram­kvæmda­stjórn um losun fjár­mags­hafta, sem skipuð var af stjórn­völdum í júlí síð­ast­liðnum, ­hefur und­an­farið fundað með slita­stjórnum ­Glitnis, Lands­bank­ans og Kaup­þings, sem fara með þessi þrjú stærstu þrotabú Íslands­sög­unnar. Um er að ræða fyrstu form­legu fundi sem full­trúar stjórn­valda hafa átt með þeim vegna mögu­legrar los­unar á fjár­magns­höftum sem sett voru síðla árs 2008 til að koma í veg fyrir að gríð­ar­legt magn eigna streymdi úr íslensku hag­kerfi, með til­heyr­andi áhrifum á gengi íslensku krón­unnar.
Samkvæmt heim­ildum Kjarnans stóð hver fundur yfir í um tvo til þrjá klukku­tíma. Þar voru engin skil­yrði fyrir gerð nauða­samn­inga kynnt heldur farið almennt yfir stöð­una, greiðslu­jöfnuð íslenska hag­kerf­is­ins og nauða­samn­inga búanna þriggja.

Tillögur lagðar fram á næstunni


Úrlausn á stöðu þrota­búa föllnu bank­anna þriggja er lyk­il­at­riði í losun hafta. Alls nema eignir þeirra þeirra yfir 2.500 millj­örðum króna og þar ef eru um 475 millj­arðar króna í íslenskum krónum. Sú upp­hæð gæti reyndar verið hærri, enda liggur ekki alveg fyrir hvaða aðferða­fræði er t.d. að baki verð­lagn­ingu á Íslands­banka og Arion banka í þeim tölum. Eins og staðan er í dag er ekki til gjald­eyrir til að skipta þeim krónum í eigu erlendra aðila í aðra gjald­miðla. Gjald­eyr­is­vara­forði Seðla­banka Íslands er 502 millj­arðar króna og að lang­mestu leyti tek­inn að láni. Því þarf að finna lausn á mál­inu, ann­að­hvort með samn­ingum eða að knýja á lausn stöð­unnar með laga­setn­ingu.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði í stefnu­ræðu sinni við setn­ingu Alþingis í síð­ustu viku að nið­ur­stöður úr vinnu hóps­ins og til­lögur til Alþingis um laga­setn­ingu varð­andi afnám hafta yrðu lagðar fram á næstu mán­uðum. „Slíkt ætti meðal ann­ars að ryðja braut­ina að lyktum skulda­skila slita­búa föllnu bank­anna. Komast þarf að nið­ur­stöðum sem eru ávallt í fullu sam­ræmi við íslensk lög og alþjóð­legar skulda­skila­reglur en sam­rým­ist um leið efna­hags­legum stöð­ug­leika Íslands og vexti, til ­fram­tíðar.“ Sig­mundur Davíð sagði einnig að lausnin þyrfti ekki ­ein­ungis að vera efna­hags­lega mögu­leg, heldur líka sam­félags­lega ásætt­an­leg.

Þetta er brot úr ítar­legri frétta­skýr­ingu Kjarnans um málið. Lestu hana í heild sinni í nýj­ustu útgáfu hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár