Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur unnið sér það helst til frægðar á þingferlinum að vera í forsvari fyrir þingsályktunartillögu um byggingu 120 milljarða króna áburðarverksmiðju. Í rökstuðningnum sagði m.a. að áburðarverksmiðjan ætti að „vekja ungum Íslendingum von í brjósti.“ Tillagan hefur nú verið lögð aftur fram. Athygli vekur að flutningsmönnum hefur fækkað úr átta Framsóknarmönnum í sjö. Frosti Sigurjónsson, sem er þekktur nýsköpunarfrumkvöðull, virðist ekki lengur vilja leggja nafn sitt við hana.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir