Þriðjungur skilaði sýni til Íslenskrar erfðagreiningar

Átakið „Útkall í þágu vís­ind­anna“, þar sem Íslensk erfða­grein­ing bauð yfir 100 þús­und lands­mönnum að taka þátt í sam­an­burð­ar­hópi fyrir rann­sóknir fyr­ir­tæk­is­ins, skil­aði um 34 þús­und nýjum lífs­sýnum til fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta segir Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, í sam­tali við Kjarnann. Því skil­aði um þriðj­ungur þeirra sem fengu senda möppu með eyðu­blöðum til stað­fest­ingar upp­lýsts sam­þykkis og munn­spaða, sem við­tak­endur áttu að nota við sýna­töku, sýnum sínum til Íslenskrar erfða­grein­ingar.

Möpp­urnar með munn­spöð­unum voru sendar út í maí síð­ast­liðnum og sam­hliða var blásið til mik­illar kynn­ing­ar­herð­ferðar á átak­inu. Það fór fram í sam­vinnu við slysa­varn­ar­fé­lagið Lands­björgu, sem sá um að safna líf­sýn­unum fyrir hönd Íslenskrar erfða­grein­ingar. Fyrir hvert sýni sem björg­un­ar­sveit­ar­menn sóttu heim til þeirra sem fengu þau send greiddi Íslensk erfða­grein­ing 2.000 krónur. Því fékk Lands­björg um 68 millj­ónir króna fyrir þátt­töku sína í átak­inu.

Deilurnar standa uppúr


Miklar deilur spruttu upp um átakið. Sið­fræði­stofnun Háskóla Íslands og nokkrir aðrir fræði­menn sendu til að mynda frá sér til­kynn­ingu þar sem kom fram að meg­in­at­riði í sið­færði rann­sókna væri að fólk taki ákvarð­anir byggðar á vit­neskju og trausti án þess að vera beitt þrýst­ingi til þátt­töku. Fjöldi vís­inda­manna sendi í kjöl­farið frá sér yfir­ýs­ingu þar sem þeir studdu átakið og ítrek­uðu mik­il­vægi þess.

Kári segir að fyrir honum standi upp úr þessu ferli að það skyldi enn einu sinni valda deilum í íslensku sam­fé­lagi um að það sé verið að reyna að fá fólk til þátt­töku í vís­inda­rann­sóknum. „Ég er enn svo­lítið hissa á því að Sið­fræði­stofnun Háskóla Íslands, til dæmis, skuli finn­ast í því fel­ast mikil áhætta fyrir fólk að taka þátt í vís­inda­rann­sóknum. Að henni finn­ist það ljótt að menn séu hvattir til að taka þátt í til­raunum til að sækja nýja þekk­ingu. Ég átta mig ekki á því hvaðan þetta fólk kemur né hvert þetta fólk er að fara. En greini­lega er til fleiri en ein teg­und af fólki í þessu sam­fé­lagi. Og það er gott.“

Eins og við var búist


Að sögn Kára var þátt­takan eins og við hafði verið búist. „Við fengum í kringum 34 þús­und nýja þátt­tak­endur, sem er svipað því sem við bjugg­umst við. Þegar þú sendir út svona án þess að reyna að fá fólk til þátt­töku í ein­hverjum sér­stökum rann­sóknum þá er þetta það sem má búast við. Það er mark­miðið og við erum býsna sátt við nið­ur­stöð­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár