Segir réttmætt að efast um óhlutdrægni Jóns Steinars

Hæsta­rétta­lög­mað­ur­inn Ragnar H. Hall skrifar pistil á Pressuna í dag þar sem hann fjallar um ummæli Jóns Steinars Gunn­laugs­sonar, fyrrum hæsta­rétt­ar­dóm­ara, um að hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn Gestur Jónsson hafi fengið hag­stæðar afgreiðslur á sínum málum fyrir rétt­inum sem „efast má um að sumir aðrir hefðu fengið“ hjá hæsta­rétt­ar­dóm­ar­anum Markúsi Sig­ur­björns­syni. Ragnar segir ummæli Jóns Steinars fela í sér mjög alvar­legar dylgjur í garð dóm­ara og spyr svo hvort „verið [sé] að gefa í skyn að Markús hafi allan starfs­tíma sinn í Hæsta­rétti verið í ein­hverju „góð­vina­hlut­verki“ þegar Gestur Jónsson tengd­ist ein­hverjum málum?“. Ragnar og Gestur Jónsson eru á meðal eig­enda lög­mann­stof­unnar Mark­ar­innar.

Kjarninn greindi frá því á föstu­dag að í haust­hefti tíma­rits­ins Þjóðmála hefðu birtst þrír kaflar úr vænt­an­legri bók Jóns Steinars sem kemur út í októ­ber. Hún ber heitið Í krafti –sann­fær­ingar – saga lög­manns og dóm­ara. Ummælin um Gest Jónsson koma fram í þessum köflum. Hægt er að lesa frétt Kjarnans um málið hér.

Truflaði ekki Jón Steinar að dæma í málum sem fyrrum samstarfsfélagar fluttu


Ragnar fjallar einnig um mögu­lega hlut­drægni Jóns Steinars í þeim málum sem fyrrum sam­starfs­menn hans fluttu fyrir Hæsta­rétti á meðan að hann var dóm­ari við rétt­inn. Orðrétt segir Ragnar: „Jón Steinar var skip­aður dóm­ari við Hæsta­rétt í októ­ber 2004. Und­an­fari þeirrar skip­unar var óvenju­legur að því leyti, að lög­menn á til­tek­inni lög­manns­stofu tóku sig til og söfn­uðu und­ir­skriftum sem afhentar voru ráð­herra, en þar var skorað á ráð­herr­ann að skipa Jón Steinar í emb­ættið. Ekki virt­ist það trufla Jón við að dæma í málum sem við­kom­andi lög­menn fluttu, en það gæti líka verið efni­viður fyrir áhuga­menn um sam­sær­is­kenn­ingar.

Jón Steinar rak eins og kunn­ugt er lög­mann­stofu í ára­tugi áður en hann varð dóm­ari í Hæsta­rétti. Á árinu 1993 kom til starfa hjá honum Karl Axelsson lög­maður, og þeir störf­uðu saman allt þar til Jón fór til dóm­ara­starfa 2004. Karl varð með­eig­andi að lög­manns­stof­unni ein­hvern tíma á þessu ára­bili. Þessi tengsl hindr­uðu Jón ekki í því að dæma í málum sem Karl flutti fyrir Hæsta­rétti, a. m. k. ell­efu málum. Í tíu af þessum ell­efu málum vissu lög­menn ekki hverjir dæmdu málin fyrr en þeir fengu dóm­inn í hendur. - Ég hef enga ástæðu til að ætla að Jón Steinar hafi verið hlut­drægur í þeim málum. Ég held því hins vegar fram gagn­að­ilar Karls hafi haft rétt­mæta ástæðu til að draga óhlut­drægni Jóns Steinars í efa í þessum málum. Þessa athuga­semd má ekki skoða sem sneið til Karls Axels­sonar lög­manns, sem ég tel í hópi vænstu manna í lög­manna­stétt­inni, enda getur hann ekki frekar en aðrir lög­menn stjórnað því hvaða dóm­arar fá mál til með­ferðar í Hæsta­rétti. Dómarar gæta sjálfir að hæfi sínu til með­ferðar hvers máls.“

Hægt er að lesa pistil Ragnars í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár