Samkeppniseftirlitið rannsakar Steinull

For­stjóri Múr­búð­ar­innar, Baldur Björns­son, segir Steinull hf., sem áður hét Stein­ull­ar­verk­smiðjan, stunda dulda álagn­ingu sem gagn­ist eig­endum hennar, Byko og Húsa­smiðj­unni, en skaði aðra sem keppa á bygg­inga­vöru­mark­aði. Hún fari fram með þeim hætti að eig­end­urnir taki fram­legð sína af sölu stein­ullar út sem arð­greiðslur frá Steinull hf. í stað þess að leggja eðli­lega á vör­una í versl­unum sínum. Steinull hefur greitt Byko og Húsa­smiðj­unni sam­tals um 110 millj­ónir króna í arð á síð­ustu þremur árum. Einar Ein­ars­son, for­stjóri Stein­ullar, hafnar ásök­unum Baldurs með öllu. Hann segir stóran hluta veltu fyr­ir­tæk­is­ins vera erlendis og að ákvarð­anir um arð­greiðslur hafi ekki byggst á ann­ar­legum sjón­ar­miðum í því skyni að standa vörð um stöðu eig­end­anna á sam­keppn­is­mark­aði.

Meint brot Stein­ullar á skil­yrðum sem sett voru fyrir eign­ar­haldi Byko og Húsa­smiðj­unnar á fyr­ir­tæk­inu fyrir rúmum ára­tug eru í rann­sókn hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu. Gamla Húsa­smiðjan – nýir eig­endur tóku við Húsa­smiðj­unni á nýrri kenni­tölu fyrir tæpum þremur árum – hefur við­ur­kennt að hafa brotið gegn skil­yrð­unum.

Ríkið á meðal stofnenda


Und­ir­bún­ingur að starf­semi Stein­ull­ar­verk­smiðj­unnar á Sauð­ar­króki hófst snemma á níunda ára­tugnum og fyrsta fram­leiðsla hennar leit dags­ins ljós síðla árs 1985. Helstu stofn­endur voru íslenska ríkið, Sauð­ár­króks­bær, finnska fyr­ir­tækið Partek AB og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga. Rekst­ur­inn gekk upp og ofan framan af. Meðal ann­ars þurfti að auka við hlutafé félags­ins nokkrum árum eftir að það hóf starf­semi.

Skömmu eftir alda­mót, nánar til­tekið í ágúst 2001, sam­þykkti byggð­ar­ráð Skaga­fjarðar að óska eftir form­legum við­ræðum við aðra hlut­hafa í Stein­ull­ar­verk­smiðj­unni um sölu á hluta­bréfum í henni. Sveit­ar­fé­lagið gerði öðrum eig­endum í kjöl­farið til­boð, sem ríkið hafn­aði. Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um einka­væð­ingu helstu rík­is­fyr­ir­tækja árin 1998-2003 er fjallað nokkur ítar­lega um það sem gerð­ist í kjöl­farið. Þar segir: „Í síð­ari hluta des­em­ber 2001 gerðu GLD heild­verslun [í eigu Húsa­smiðj­unnar og Byko] og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga sam­eig­in­legt til­boð í 52% eign­ar­hlut sveit­ar­fé­lags­ins og Paroc Group. Þetta þýddi að þessir aðilar hefðu haft um 70% eign­ar­hlut í verk­smiðj­unni. Þegar ljóst var að Paroc Group hafði breytt afstöðu sinni og var til­búið til að selja lagði ríkið til að þessir þrír aðilar sam­ein­uð­ust um að óska eftir til­boðum í bréfin. Því hafn­aði sveit­ar­fé­lagið sem lagði alla áherslu á að ljúka söl­unni sem allra fyrst. Eftir að þetta sölu­ferli var komið af stað gat ríkið, sem 30% eig­andi, ekki haft mikil áhrif á gang mála“.

Ríkið seldi því hlut sinn snemma árs 2002, eftir að aðrir eig­endur höfðu í raun stillt því upp við vegg. Það fékk alls 220,1 milljón króna fyrir 30,11 pró­senta eign­ar­hlut sinn. ­Skráður hagn­aður í bók­haldi rík­is­ins var 116,5 millj­ónir króna.


Byko og Húsasmiðjan á meðal eigenda


Stærstu eig­endur Stein­ullar hf. í dag eru Byko (24,5 pró­sent), Húsa­smiðjan (24,5 pró­sent) og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga (24,5 pró­sent). Kaup­félagið á auk þess óbeint 15 pró­sent í við­bót í gegnum félagið Íslensk Kín­verska ehf. Afgang­ur­inn, 11,5 pró­sent, eru í eigu finnska félags­ins Paroc Group Oy AB.
Samkvæmt síð­asta birta mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er mark­aðs­hlut­deild hennar í fram­leiðslu á stein­ull, sem er notuð í ein­angrun í nán­ast öllum bygg­ingum sem byggðar eru hér­lendis, um eða yfir 90 pró­sent. Það ber þó að taka fram að matið er rúm­lega ára­tugs gam­alt. Byko og Húsa­smiðjan eru síðan með sam­eig­in­lega yfir­burða­stöðu á gróf­vöru­mark­aði, meðal ann­ars í sölu stein­ullar.
Rekstur Stein­ullar hf. hefur líka gengið afbragðsvel und­an­farin ár. Veltan hefur auk­ist hratt. Árið 2010 var hún 704 millj­ónir króna en í fyrra var hún komin upp í 924 millj­ónir króna. Það er tæp­lega þriðj­ungs­aukn­ing á þremur árum.

Vegna þessa góða rekst­urs hefur Steinull greitt eig­endum sínum góðan arð. Vegna árs­ins 2011 fengu þeir 100 millj­ónir króna. Ári síðar voru greiddar út 50 millj­ónir króna og í fyrra um 75 millj­ónir króna. Samtals nema arð­greiðsl­urnar því 225 millj­ónum króna á þremur árum.

Af þeirri upp­hæð hafa 110,3 millj­ónir króna farið til Byko og Húsa­smiðj­unnar.

Á sama tíma hefur rekstur þess­ara risa íslensks bygg­inga­vöru­mark­aðar gengið afleit­lega. Húsa­smiðjan tap­aði 1,6 millj­arði króna árið 2011, 179 millj­ónum króna árið 2012 og 174,5 millj­ónum króna árið 2013. Frá því að nýir eig­endur, danska bygg­inga­keðjan Bygma, tóku við fyr­ir­tæk­inu í upp­hafi árs 2012 hefur það því tapað 353,5 millj­ónum króna.

Rekstur Byko hefur gengið enn verr. Fyr­ir­tækið tap­aði 352,4 millj­ónum króna árið 2011, 390,8 millj­ónum króna árið 2012 og 156 millj­ónum króna í fyrra.

Rannsókn stendur yfir


Í til­kynn­ingu sem Sam­keppnis­eft­ir­litið sendi frá sér 11. júlí síð­ast­lið­inn, þar sem greint er frá því að rann­sókn þess á brotum Húsa­smiðj­unnar sé lokið með sátt, segir: „Við­ur­kennt er að gamla Húsa­smiðjan hafi brotið gegn skil­yrðum sem sett voru í ákvörðun sam­keppn­is­ráðs nr. 19/2002. Þau skil­yrði voru sett vegna kaupa Byko, Húsa­smiðj­unnar og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á eign­ar­hlutum í Stein­ull­ar­verk­smiðj­unni hf. (nú Steinull hf.). Skil­yrð­unum var ætlað að vinna gegn því að sam­eig­in­leg eign­ar­að­ild Byko og Húsa­smiðj­unnar að Steinull myndi tak­marka sam­keppni. Játað er að gamla Húsa­smiðjan hafi brotið gegn skil­yrð­unum, m.a. með því að hafa beitt sér gagn­vart Steinull til að koma í veg fyrir að Múrbúðin fengi ákveðin við­skipta­kjör og þannig haft skað­leg áhrif á sam­keppn­is­stöðu Múr­búð­ar­innar á gróf­vöru­mark­aði“.

Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu um með hvaða hætti Steinull hf. hefði komið í veg fyrir að Múrbúðin fengi ákveðin við­skipta­kjör. Í skrif­legu svari Páls Gunnars Páls­sonar, for­stjóra Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, við fyr­ir­spurn­inni kemur fram að brot Stein­ullar hf. séu enn til rann­sóknar hjá eft­ir­lit­inu. Á meðan að nið­ur­staða er ekki fengin í mál­inu gagn­vart Steinull getum við ekki tjáð okkur um ætluð brot þess fyr­ir­tækis að öðru leyti en að vísa til þeirra skil­yrða sem sett voru í ákvörðun 19/2002,“ segir enn­fremur í svari Páls.

Skil­yrðin sem sett voru eru sjö. Á meðal þess sem þau eiga að tryggja er að við­skipta­kjör allra við­skipta­manna Stein­ullar hf. séu almenn, að Steinull sé óheim­ilt að úti­loka ákveðna við­skipta­menn frá við­skiptum við fyr­ir­tækið, Byko og Húsa­smiðj­unni er óheim­ilt að beita sér gegn Steinull þannig að það miði að því að hafa áhrif á sam­keppn­is­stöðu ann­arra við­skipta­vina og for­svars­mönnum Stein­ullar er óheim­ilt að veita eig­endum sínum upp­lýs­ingar um við­skipta­kjör ann­arra við­skipta­vina. Rannsókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins snýst um ætluð brot á ein­hverjum þess­arra skil­yrða.

 

Telur eigendur sleppa framlegð í verslun en taka hana út með arði


Baldur Björns­son, for­stjóri Múr­búð­ar­innar, sem rak gróf­vöru­deild og seldi stein­ull í rúm þrjú ár, en hefur nú lokað henni, segir að Steinull hf. stundi dul­búna álagn­ingu sem gagn­ist eig­endum hennar, Byko og Húsa­smiðj­unni. „Þetta er ofur­hagn­að­ar­fyr­ir­tæki sem er með fjar­lægð­ar­vernd frá öðrum mörk­uðum. Og þetta er bara dul­búin álagn­ing sem birt­ist í verð­unum þeirra.“

Að sögn Baldurs reyndi Múrbúðin að selja Steinull á kostn­að­ar­verði. Hún seld­ist samt ekki. „Við byrj­uðum að leggja á stein­ull­ina 18 pró­sent, fórum svo fljótt niður í 15 pró­sent og alla leið niður í tíu pró­sent. Varan seld­ist samt ekki. Við próf­uðum meira að segja að bjóða vör­una á kostn­að­ar­verði en fengum samt ekki við­skiptin.

Við rákum þessa gróf­vöru­deild í rúm þrjú ár og seldum allar vörur í henni sem þurfti. Við vorum með hörku­fínt vöru­úr­val og gátum selt flestar vörur með 18 til 30 pró­senta fram­legð. En þetta er til­boðs­mark­aður. Auðvitað er erfitt að segja nákvæm­lega hvað það var sem gerði það að verkum að verk­takar ákváðu ekki að skipta við okkur. Þeir eiga auð­vitað alltaf síð­asta orðið. En ef við vorum ekki sam­keppn­is­hæfir í verði á lyk­il­vöru eins og stein­ull þá skipti það að sjálf­sögðu miklu máli.Steinull er algjör lyk­il­vara til að kom­ast inn á þennan markað.“

Baldur segir að fram­legðin hefði þurft að vera á bil­inu 15 til 20 ­pró­sent svo það hefði borgað sig að selja stein­ull. „Þetta er mjög rúm­frek vara. Einn 40 feta gámur dugar ekki til að ein­angra heilt ein­býl­is­hús. Hún tekur því rosa­legt pláss í vöru­húsi sem kostar til við­bótar við fjár­bind­ingu og annan sölu­kostnað.“

For­stjóri Stein­ullar full­yrðir að Byko og Húsa­smiðjan hafi fengið sömu við­skipta­kjör og Múrbúðin. Baldur rengir það ekki en segir aug­ljóst að fyr­ir­tækin tvö hafi greini­lega ekki lagt nægi­lega mikið á stein­ull til að það myndi svara kostn­aði. Þess í stað virð­ist þau taka út fram­legð sína í gegnum arð­greiðslur sem eig­endur að Steinull hf. „Bæði Byko og Húsa­smiðjan voru að tapa 500 millj­ónum krónum á ári fyrir skatta á þessu tíma­bili. Það er erfitt að ímynda sér að það hafi verið mikið svig­rúm hjá þeim að fara í verð­stríð við okkur.“

Steinull braut ekki skilyrðin og engar duldar greiðslur til hluthafa


Einar Ein­ars­son, for­stjóri Stein­ullar hf., segir að fyr­ir­tækið hafi ávallt leit­ast við að fylgja skil­yrðum sem voru sett fyrir kaupum Byko og Húsa­smiðj­unnar árið 2002. „Þótt gamla Húsa­smiðjan hafi við­ur­kennt að hafa brotið skil­yrðin hefur það ekk­ert með Steinull hf. að gera. Mikill mis­skiln­ingur er hjá for­svars­mönnum Múr­búð­ar­innar að halda að það sé sama­sem­merki á milli þess að Húsa­smiðjan hafi brotið skil­yrði, með því að reyna að hafa áhrif á Steinull, og þess að Steinull hafi gengið svo langt að brjóta skil­yrðin.

Afurðir verk­smiðj­unnar á inn­an­lands­mark­aði eru seldar sam­kvæmt einum og sama verð­lista og við­skipta­vinir njóta allir afslátta í sam­ræmi við sömu við­mið­un­ar­reglur, sem kynntar voru sam­keppn­is­yf­ir­völdum 2002 og eru enn óbreyttar og er hámarks­magn­af­sláttur því sá sami og var þá. Ég þarf von­andi ekki að taka fram að ekki er um neina eft­irá­greidda afslætti að ræða eða aðrar duldar greiðslur til hlut­hafa.“

Að sögn Einars hafa allar verð­hækk­anir sem átt hafa sér stað á árunum 2010-2014 tekið mið af kostn­að­ar­hækk­unum við fram­leiðsl­una. „Í stefnu Stein­ullar hf. frá 2002 um fjár­hags­leg mark­mið fyr­ir­tæk­is­ins segir að stefnt sé að 20 pró­senta arð­semi eig­in­fjár og að eig­in­fjár­hlut­fall verði á bil­inu 40 – 60 pró­sent. Stefnt er að því að greiða eig­endum 10 pró­senta arð. Þessi mark­mið tóku ekki síst mið af til­lögum Paroc OY AB, sem er stór­fram­leið­andi á stein­ull og eig­andi 11,5 pró­senta hluta­fjár­ins.

Hagnaður Stein­ullar hf. árin 2008 -2013 er sam­tals um 480 millj­ónir eða um 80 millj­ónir á ári að með­al­tali. Rétt er að fram komi að sala á inn­an­land­mark­aði er ekki eina stoðin í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins heldur hefur tek­ist að byggja upp afar mik­il­vægan útflutn­ings­markað í Færeyjum, Bret­landi og Norður-Evrópu, sem skapað hefur veru­legan hluta hagn­aðar fyr­ir­tæk­is­ins.
Eig­in­fjár­hlut­fall fyr­ir­tæk­is­ins í lok árs 2008 var komið niður undir 20 pró­sent og því var eng­inn arður greiddur hlut­höfum árin 2009, 2010 og 2011. Í lok árs 2011 var eig­in­fjár­hlut­fallið komið upp í 56% og því tekin ákvörðun um 100 milljón króna arð­greiðslu árið 2012. Árið 2013 ákvað aðal­fundur að greiða hlut­höfum út 50 millj­ónir í arð. Frá 2011 hefur eig­in­fjár­hlut­fallið verið 55 - 60 pró­sent, sem er nálægt efri mörkum sam­kvæmt stefnu fyr­ir­tæk­is­ins. Samtals nema arð­greiðslur fyr­ir­tæk­is­ins því 150 millj­ónum árin 2009 - 2013. Eigið fé hefur síð­ustu árin verið um 500 millj­ónir.“

Einar segir að ofan­greint sýni ljós­lega að ákvarð­anir um arð­greiðslur hafi alfarið tekið mið af stefnu stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins um að reka heil­brigt og öfl­ugt fyr­ir­tæki, ekki byggst á ann­ar­legum sjón­ar­miðum í því skyni að standa vörð um stöðu eig­end­anna á sam­keppn­is­mark­aði líkt og ýjað hefur verið að.

„Mér er ómögu­legt að finna nokkuð í skil­yrðum Sam­keppn­is­ráðs frá 2002 eða sam­keppn­is­lögum, sem bannar arð­greiðslur til hlut­haf­anna enda aug­ljóst að ef svo hefði verið, hefði aldrei skap­ast grund­völlur fyrir kaupum núver­andi eign­ar­að­ila, eða ann­arra, á hlutum í fyr­ir­tæk­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár