Tveir fyrrum starfsmenn DV ráðnir til 365 miðla

Tveir starfs­menn DV, sem sögðu upp störfum hjá miðl­inum fyrir helgi, hafa ráðið sig til 365 miðla, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Um er að ræða Viktoríu Her­manns­dóttur, sem mun starfa á inn­blaði Frétta­blaðs­ins, og Aðal­stein Kjart­ans­son, sem mun starfa á vefnum Vísi.is. Heim­ildir Kjarnans herma að mögu­lega séu fleiri starfs­menn DV á leið­inni yfir til 365 miðla.

Miklar hrær­ingar hafa verið innan DV und­an­farnar vikur vegna átaka í eig­enda­hópi útgáfu­fé­lags DV. Síð­ast­lið­inn föstu­dag náði hópur undir for­ystu Þor­steins Guðna­sonar meiri­hluta í félag­inu og ný stjórn skipuð í kjöl­farið. Þau Viktoría og Aðal­steinn sögðu í kjöl­farið upp störfum sínum á DV. Upp­sagn­ar­bréfið skrif­uðu þau á serví­ettur og afhentu Jóni Trausta Reyn­is­syni, fram­kvæmda­stjóra DV.

Sú stjórn fund­aði um helg­ina og ákvað að setja Reyni Trausta­son, rit­stjóra og einn aðal­eig­anda DV, í tíma­bundið leyfi. Hann má ekki hafa afskipti af fréttum né mæta á starfs­stöð á meðan að leyfið stendur yfir. Fastlega er búist við því að Reynir verði rek­inn á næst­unni. Hall­grímur Thor­steins­son var ráð­inn rit­stjóri DV í stað Reynis.

Hall­grímur og Þor­steinn fund­uðu með starfs­fólki DV í morgun. Mikill hiti var í starfs­mönnum DV á fund­inum og þeir ósáttir með brott­rekstur Reynis. Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, aðstoð­ar­rit­stjóri DV, sagði í sam­tali við RÚV að DV myndi að öllum lík­indum ekki koma út á morgun. Enginn blaða­maður myndi hefja störf fyrr en hann hefði fengið svör við ýmsum ósvöruðum spurn­ingum rit­stjórn­ar­innar.

Mikil upp­stokkun hefur átt sér stað innan 365 miðla að und­an­förnu. Mikael Torfason aðal­rit­stjóri hefur verið rek­inn og Ólafur Steph­en­sen rit­stjóri sagt upp störfum. Kristín Þor­steins­dóttir, útgef­andi 365 miðla, tók í kjöl­farið að sér starf aðal­rit­stjóra og Sigurjón M. Egilsson, útvarps­maður og rit­stjóri www.midjan.is, var ráð­inn sem frétta­rit­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár