Kjarninn birtir hljóðupptöku af starfsmannafundi DV

Þor­steinn Guðnason, stjórn­ar­for­maður DV og stærsti eig­andi útgáfu­fé­lags mið­ils­ins, ætlar ekki að eiga hlut sinn í DV lengi. Eign­ar­hald hans er til­komið að mestu vegna þess að Gísli Guð­munds­son, kenndur við B&L, lán­aði Reyni Trausta­syni fé fyrir tveimur árum og fram­seldi síðan kröf­una til Þor­steins. Kaup Þor­steins á öðrum hlutum í DV, meðal ann­ars hlut Lilju Skafta­dóttur, voru fjár­mögnuð með eigin fé og lánsfé. Að hans sögn stendur til að gera fulla grein fyrir því, í smá­at­riðum, hvernig eign­ar­haldi á DV er háttað innan skamms.

Þetta er á meðal þess sem fram kom í byrjun mik­ils hita­fundar sem nýir eig­endur DV, undir stjórn Þor­steins, og Hall­grímur Thor­steins­son, nýráð­inn rit­stjóri DV, héldu með starfs­fólki á mánu­dag. Kjarninn hefur upp­töku af fund­inum undir höndum og mun birta hana í nokkrum hlutum. Upptakan, sem er rúmir tveir tímar að lengd, mun síðan verða birt í heild sinni þegar umfjöllun Kjarnans um hana lýkur.

Á meðal þess sem Þor­steinn sagði við starfs­fólkið í upp­hafi fundar var að nýir eig­endur ætl­uðu sér ekki að skipta sér að rit­stjórn blaðs­ins. Þeir væru heldur ekki að kaupa DV til að græða pen­inga.

Gríð­ar­legur hiti var í starfs­fólk­inu á fund­inum og mikil óánægja gagn­vart nýjum eig­endum. Á meðal ann­arra hluta sem ræddir voru á fund­inum, og koma fram á upp­tök­unni, er aðkoma Sigurðar G. Guð­jóns­sonar að yfir­tök­unni á DV, yfir­lýs­ingar nýrra eig­enda um rann­sókn á starfs­fólki, brott­hvarf Reynis Trausta­sonar og áhyggjur blaða­manna á því að nýir eig­endur, sem þeir telja marga hverja vera fjand­sam­lega DV, muni skoða tölvu­póst­anna þeirra.

Kjarninn mun birta fleiri fréttir upp úr upp­tök­unni.

Hægt er að hlusta á brot af upp­hafi fund­ar­ins hér að neðan.

[audio mp3="http://kjarninn.s3.amazonaws.com/old/2014/09/upptaka_01.mp3"][/audio]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Yfirtaka á DV

FréttirYfirtaka á DV

DV-upp­taka: „Á Hanna Birna að koma og skoða tölvu­póst­inn?“

Starfs­fólk DV var gríð­ar­lega óánægt með hvaða hætti Reyni Trausta­syni var bolað út úr fyr­ir­tæk­inu og þær yfir­lýs­ingar sem nýir eig­endur mið­ils­ins sendu á fjöl­miðla í tengslum við valda­bar­áttu um eign­ar­hald DV. Þetta kemur ítrekað fram á hita­fundi starfs­manna með Þor­steini Guðn­a­syni, stjórn­ar­for­manni og fram­kvæmda­stjóra DV, og Hall­grími Thor­steins­syni, nýráðnum rit­stjóra, sem fram fór á mánu­dag. Kjarninn hefur upp­töku af...
FréttirYfirtaka á DV

DV-upp­taka: Fyrrum eig­andi Eyjunnar fer yfir rekstur DV

Nýir eig­endur DV ætla að fá Jón Garðar Hreið­ars­son, fyrrum aðal­eig­anda Eyjan Media, til að fram­kvæma úttekt á rekstri útgáfu­fé­lags­ins. Það er hluti af þeirri úttekt sem á að fara fram á honum næstu miss­er­inn. Þetta kom fram í máli Þor­steins Guðna­sonar, stjórn­ar­for­manns DV, og Hall­gríms Thor­steins­sonar, nýs rit­stjóra, á hita­fundi með starfs­mönnum DV á mánu­dag. Kjarninn hefur upp­töku af...
FréttirYfirtaka á DV

DV-upp­taka: Hall­grímur segir Sigurð G. haga sér fárán­lega

Hall­grímur Thor­steins­son, nýráð­inn rit­stjóri DV, segir Sigurð G. Guð­jóns­son, lög­mann sem hefur verið lyk­il­leik­ari í yfir­töku nýrra eig­enda á DV, hafa hagað sér fárán­lega. Hall­grímur lét þau orð falla á starfs­manna­fundi á mánu­dag. Kjarninn hefur upp­tökur af fund­inum undir höndum. Orðrétt sagði Hall­grímur: „Mér finnst það fárán­legt hvernig Sigurður G. Guð­jóns­son hefur hegðað sér í þessu máli. Ég verð að...
FréttirYfirtaka á DV

DV-upp­taka: Ávirð­ingar „sem settar eru fram af ykkur“

Starfs­menn DV fóru fram á það á starfs­manna­fundi á mánu­dag að fá útskýr­ingar á hvernig staðið var að brott­rekstri Reynis Trausta­sonar og á þeim ávirð­ingum sem bornar hafa verið á Reyni og rit­stjórn­ina. Ljóst er að starfs­menn rit­stjórnar líta svo á að þær ásak­anir sem bornar hafa verið á Reyni vegna lán­taka hans hjá Guðmundi Krist­jáns­syni, kenndum við Brim, og...
FréttirYfirtaka á DV

Enn fækkar starfs­mönnum og áskrif­endum DV

Símon Örn Reyn­is­son blaða­maður á DV hefur sagt upp störfum hjá blað­inu, en hann er sonur Reynis Trausta­sonar frá­far­andi rit­stjóra DV. Þá hefur Jón Ingi Stef­áns­son, hönn­un­ar­stjóri DV, sömu­leiðis látið af störfum hjá blað­inu, en hann til­kynnti um upp­sögn sína um nýliðna helgi. Þá herma heim­ildir Kjarnans að ónefndur yfir­maður á DV hygg­ist sömu­leiðis segja starfi sínu lausu á næst­unni,...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár