Fréttamál

Yfirtaka á DV

Fréttir

DV-upp­taka: „Á Hanna Birna að koma og skoða tölvu­póst­inn?“

Starfs­fólk DV var gríð­ar­lega óánægt með hvaða hætti Reyni Trausta­syni var bolað út úr fyr­ir­tæk­inu og þær yfir­lýs­ingar sem nýir eig­endur mið­ils­ins sendu á fjöl­miðla í tengslum við valda­bar­áttu um eign­ar­hald DV. Þetta kemur ítrekað fram á hita­fundi starfs­manna með Þor­steini Guðn­a­syni, stjórn­ar­for­manni og fram­kvæmda­stjóra DV, og Hall­grími Thor­steins­syni, nýráðnum rit­stjóra, sem fram fór á mánu­dag. Kjarninn hefur upp­töku af...
Fréttir

DV-upp­taka: Fyrrum eig­andi Eyjunnar fer yfir rekstur DV

Nýir eig­endur DV ætla að fá Jón Garðar Hreið­ars­son, fyrrum aðal­eig­anda Eyjan Media, til að fram­kvæma úttekt á rekstri útgáfu­fé­lags­ins. Það er hluti af þeirri úttekt sem á að fara fram á honum næstu miss­er­inn. Þetta kom fram í máli Þor­steins Guðna­sonar, stjórn­ar­for­manns DV, og Hall­gríms Thor­steins­sonar, nýs rit­stjóra, á hita­fundi með starfs­mönnum DV á mánu­dag. Kjarninn hefur upp­töku af...
Fréttir

DV-upp­taka: Hall­grímur segir Sigurð G. haga sér fárán­lega

Hall­grímur Thor­steins­son, nýráð­inn rit­stjóri DV, segir Sigurð G. Guð­jóns­son, lög­mann sem hefur verið lyk­il­leik­ari í yfir­töku nýrra eig­enda á DV, hafa hagað sér fárán­lega. Hall­grímur lét þau orð falla á starfs­manna­fundi á mánu­dag. Kjarninn hefur upp­tökur af fund­inum undir höndum. Orðrétt sagði Hall­grímur: „Mér finnst það fárán­legt hvernig Sigurður G. Guð­jóns­son hefur hegðað sér í þessu máli. Ég verð að...
Fréttir

Kjarninn birtir hljóð­upp­töku af starfs­manna­fundi DV

Þor­steinn Guðnason, stjórn­ar­for­maður DV og stærsti eig­andi útgáfu­fé­lags mið­ils­ins, ætlar ekki að eiga hlut sinn í DV lengi. Eign­ar­hald hans er til­komið að mestu vegna þess að Gísli Guð­munds­son, kenndur við B&L, lán­aði Reyni Trausta­syni fé fyrir tveimur árum og fram­seldi síðan kröf­una til Þor­steins. Kaup Þor­steins á öðrum hlutum í DV, meðal ann­ars hlut Lilju Skafta­dóttur, voru fjár­mögnuð með...
Fréttir

DV-upp­taka: Ávirð­ingar „sem settar eru fram af ykkur“

Starfs­menn DV fóru fram á það á starfs­manna­fundi á mánu­dag að fá útskýr­ingar á hvernig staðið var að brott­rekstri Reynis Trausta­sonar og á þeim ávirð­ingum sem bornar hafa verið á Reyni og rit­stjórn­ina. Ljóst er að starfs­menn rit­stjórnar líta svo á að þær ásak­anir sem bornar hafa verið á Reyni vegna lán­taka hans hjá Guðmundi Krist­jáns­syni, kenndum við Brim, og...
Fréttir

Enn fækkar starfs­mönnum og áskrif­endum DV

Símon Örn Reyn­is­son blaða­maður á DV hefur sagt upp störfum hjá blað­inu, en hann er sonur Reynis Trausta­sonar frá­far­andi rit­stjóra DV. Þá hefur Jón Ingi Stef­áns­son, hönn­un­ar­stjóri DV, sömu­leiðis látið af störfum hjá blað­inu, en hann til­kynnti um upp­sögn sína um nýliðna helgi. Þá herma heim­ildir Kjarnans að ónefndur yfir­maður á DV hygg­ist sömu­leiðis segja starfi sínu lausu á næst­unni,...

Mest lesið undanfarið ár