Veiðigjöld lækka um 1,8 milljarða króna á næsta ári

Veiði­gjöld munu lækka um 1,8 millj­arða króna á næsta ári. Þá er áætlað að þau verði um átta millj­arðar króna en þau skil­uðu um 9,8 millj­örðum króna í rík­is­kass­ann á þessu ári. Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2015 sem kynnt var í gær­morgun.

Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks réðst í breyt­ingar á veiði­leyfagjöldum sum­arið 2013 með það fyrir sjónum að lækka það umtals­vert. Lækkun veiði­gjalda mun koma fyrst fram að fullu árið 2015.

Mikill hagnaður í sjávarútvegi


Stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, sem greiða uppi­stöð­una af veiði­gjöld­unum, hafa ekki upp­lifað neina sult­ar­tíma á und­an­förnum árum. Auknar mak­ríl­veiðar hafa þar skipt miklu máli. Fyr­ir­tækin sem veiða mak­ríl greiddu ekki sér­stak­lega fyrir þær afla­heim­ildir.

Í síð­ustu viku var til­kynnt um að Samherji, eitt stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki Evrópu, hefði hagn­ast um 22 millj­arða króna á árinu á undan. Hluti þess hagn­aðar er til­kom­inn vegna eign­ar­sölu og um helm­ingur af starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins er erlendis. Heild­ar­hagn­aður Samherja og dótt­ur­fé­laga á árunum 2011 til 2013 voru tæpir 47 millj­arðar króna.

Það hefur líka gengið ágæt­lega hjá HB Granda. Fyr­ir­tækið hagn­að­ist um 14,1 millj­arð króna á tíma­bil­inu 2011 til 2013. Útgerð­ar­fé­lagið Brim skil­aði sam­tals tæp­lega tíu millj­arða króna hagn­aði árin 2011 og 2012 og Ísfélag Vest­manna­eyja hagn­að­ist um 7,8 millj­arða króna á sama tveggja ára tíma­bili. Hvorugt fyr­ir­tækið hefur skilað inn árs­reikn­ingi fyrir árið 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár