Ingibjörg Dögg aðstoðarritstjóri DV hætt störfum

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, aðstoð­ar­rit­stjóri DV, er hætt störfum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Hún er þar með fimmti starfs­maður DV sem hverfur frá störfum síð­ustu daga eftir að ný stjórn tók yfir útgáfu­fé­lag mið­ils­ins. Auk þess hefur Reynir Trausta­son,rit­stjóri og einn aðal­eig­andi DV, verið settur í tíma­bundið leyfi út þennan mánuð. Fastlega er búist við því að hann snúi ekki aftur til starfa.

Miklar hrær­ingar hafa verið innan DV und­an­farnar vikur vegna átaka í eig­enda­hópi útgáfu­fé­lags DV. Síð­ast­lið­inn föstu­dag náði hópur undir for­ystu Þor­steins Guðna­sonar meiri­hluta í félag­inu og ný stjórn skipuð í kjöl­farið. Viktoría Her­manns­dóttir og Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­menn á DV, sögðu í kjöl­farið upp störfum sínum. Upp­sagn­ar­bréfið skrif­uðu þau á serví­ettur og afhentu Jóni Trausta Reyn­is­syni, fram­kvæmda­stjóra DV. Þau hafa bæði ráðið sig til 365 miðla. Til við­bótar sögðu tveir aðrir starfs­menn DV upp störfum.

Ný stjórn DV fund­aði um helg­ina g ákvað að setja Reyni Trausta­son, rit­stjóra og einn aðal­eig­anda DV, í tíma­bundið leyfi. Hann má ekki hafa afskipti af fréttum né mæta á starfs­stöð á meðan að leyfið stendur yfir. Fastlega er búist við því að Reynir verði rek­inn á næst­unni. Hall­grímur Thor­steins­son var ráð­inn rit­stjóri DV í stað Reynis.

Hall­grímur og Þor­steinn fund­uðu með starfs­fólki DV í gær­morgun. Mikill hiti var í starfs­mönnum DV á fund­inum og þeir ósáttir með brott­rekstur Reynis. DV kom að þeim sökum ekki út í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár