Metro-maður aftur ákærður fyrir skattsvik

Jón Garðar Ögmunds­son, kenndur við Metro-borg­ara, og Ásgerður Guð­munds­dóttir hafa verið ákærð af emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara öðru sinni fyrir að meiri háttar skatt­svik í gegnum fyrrum móð­ur­fé­lag Metro-keðj­unnar. Fólkið stóð ekki skil á greiðslu opin­berra gjalda sem það hafði haldið aftur af launum starfs­manna sinna á árunum 2011 og 2012. Í ákærunni, sem gefin var út 17. júlí, segir að van­goldin stað­greiðsla opin­berra gjalda sé „sam­tals að fjár­hæð kr. 33.861.435 hvað varðar Ásgerði og 34.960.099 hvað varðar Jón Garðar“. Kjarninn hefur ákæruna undir höndum. Hana er hægt að lesa hér.

Dæmdur í febrúar fyrir sömu sakir


Þetta er í annað sinn á tæpu ári sem sér­stakur sak­sókn­ari gefur út ákæru á hendur Jóni Garðari fyrir að skila ekki inn opin­berum gjöldum sem hann hafði dregið af starfs­mönnum sínum. Í fyrra haust var gefin út önnur ákæru á hendur honum fyrir sömu sakir vegna áranna 2009 og 2010. Alls nam upp­hæðin sem skil­aði sér ekki þá 22,5 millj­ónum króna. Í því máli var Jón Garðar sak­felldur og dæmdur í fimm mán­aða fang­elsi, skil­orðs­bundið til tveggja ára. Honum var auk þess gert að greiða 45 millj­ónir króna í sekt. Dómurinn er ekki aðgengi­legur á vef hér­aðs­dóms Reykja­víkur. Kjarninn hefur hann hins vegar undir höndum. Hann má lesa hér.

Röð gjaldþrota


Jón Garðar rak áður McDonalds-staði á Íslandi í gegnum einka­hluta­fé­lagið Lyst ehf. Árið 2009 versnuðu við­skipta­kjör það mikið í kjöl­far banka­hruns að hann ákvað að breyta stöð­unum í Metro og kom­ast þannig hjá því að fylgja ströngum stöðlum alþjóð­legu risa­keðj­unnar um inn­kaup. Þau brot sem Jóni Garðari var gefið að hafa framið með fyrri skattsvika­á­kærunni frá því í sept­em­ber í fyrra eiga að hafa verið framin á starfs­mönnum Lystar.

Rekstur Metro var seldur frá Lyst yfir til félags­ins Lífs og heilsu ehf. í júní 2010 og skömmu síðar fór Lyst í gjald­þrot. Samkvæmt til­kynn­ingu í Lög­birt­ing­ar­blað­inu námu lýstar kröfur í bú Lystar 379,2 millj­ónum króna. Nánast ekk­ert fékkst upp í þær.

Afsalað til Ásgerðar að nýju


Skráður eig­andi Lífs og heilsu, sem tók við rekstri Metro-stað­anna, var Ásgerður, sem sam­kvæmt fyrri fjöl­miðlaum­fjöllun er kærasta Jóns Garðars. Síðari ákæran, sem gefin var út í júlí 2014, er vegna meintra skattsvika þeirra tveggja í gegnum það félag. Líf og heilsa seldi rekstur Metró-stað­anna til enn eins félags, M-veit­inga ehf., haustið 2012. Skömmu síðar var Líf og heilsa svo lýst gjald­þrota. Jón Garðar sagði af þessu til­efni í sam­tali við Morg­un­blaðið að kaup­verðið á rekstr­inum ætti að duga fyrir um 100 milljón króna skuldum Líf og heilsu. Samkvæmt þeim gögnum sem finn­ast í fyr­ir­tækja­skrá er eina féð sem greitt hefur verið inn í M-veit­ingar 500 þús­und króna stofn­hlutafé.

Samkvæmt frétt í DV um málið var skráður eig­andi M-veit­inga Jón Heiðar Pálsson, nágranni Jóns Garðars og góður vinur. Í til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skráar frá því í febr­úar 2013 kemur fram að allt hlutafé í M-veit­ingum hafi verið afsalað til Ásgerðar. Hún er því í dag eig­andi Metró-keðj­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár