Sjálfstæðissinnar í Skotlandi taka forystu í könnunum

Fleiri Skotar eru nú fylgj­andi sjálf­stæði en á móti því, en kosið verðum um hvort Skotland kljúfi sig frá Bret­landi og verði sjálf­stætt ríki á ný þann 18. sept­em­ber næst­kom­andi. Staðan í bar­átt­unni hefur því snú­ist alveg ótrú­lega á síð­ustu miss­erum. Fyrir um ári síðan var hlut­fall þeirra sem var fylgj­andi sjálf­stæði um 30 pró­sent, hlut­fall þeirra sem var á móti um 60 pró­sent og hlut­fall óákveð­inna um 10 pró­sent.

Í fyrsta sinn í forystu í könnunum


Nú, tæpum tveimur vikum fyrir kosn­ing­arnar, hafa sjálf­stæð­is­sinnar hins vegar tekið for­ystu í bar­átt­unni í fyrsta sinn, sam­kvæmt könn­unum. Í könnun sem The Sunday Times gerði í lok síð­ustu viku kemur fram að 51 pró­sent þeirra sem taka afstöðu eru fylgj­andi sjálf­stæði en 49 pró­sent eru á móti. Þar er ekki tekið til­lit til óákveð­inna en mæl­ingar hafa sýnt að þeir séu hall­ari undir sjálf­stæði frekar en að vera áfram hluti af Bret­landi. Þeir sem eru óákveðnir eða segj­ast ekki ætla mæta á kjör­stað eru nú um átta pró­sent. Að teknu til­liti til þeirra ætla 47 pró­sent aðspurðra Skota að segja já við sjálf­stæði en 45 pró­sent nei.

Sjálf­stæð­is­sinnar hafa sótt hratt á í könn­unum eftir að aðrar sjón­varp­s­kapp­ræður Alex Salmond, fyrsta ráð­herra Skotlands og for­manns Skoska þjóð­ar­flokks­ins, og Alistair Darling, fyrrum fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, fóru fram í lok ágúst. Salmond fer fyrir sjálf­stæð­is­sinnum í bar­átt­unni en Darling er opin­ber tals­maður Nei-sinna. Salmond þótti hafa sigrað kapp­ræð­urnar með nokkrum yfir­burðum og heillað marga kjós­endur með stað­festu sinni og ástríðu. Darling hafði komið honum í nokkur vand­ræði í fyrstu kapp­ræðum þeirra félaga með því að þrá­spyrja hann um hvernig gjald­miðla­málum yrði háttað ef sjálf­stæði yrði ofan á, en Salmond og sjálf­stæð­is­sinnar vilja halda í breska pundið þrátt fyrir að bresk stjórn­völd séu því and­stæð. Salmond þótti klaufa­legur í til­svörun og nær allir skýrendur voru sam­mála um að Darling hefði sigrað þær kapp­ræður nokkuð örugg­lega. Töldu margir stjórn­mála­skýrendur að slag­ur­inn væri í raun tap­aður eftir fyrstu kapp­ræð­urnar. Svo reynd­ist alls ekki vera.

Nið­ur­stöður könn­unar The Sunday Times ríma við þær þá stöðu sem einkakann­anir Já-sinna hafa verið að sýna að und­an­förnu. Staðan hefur líka valdið gríð­ar­legum titr­ingi í breskum stjórn­málum. Við­mæl­endur Kjarnans í hópi þeirra sem starfa að sjálf­stæð­is­bar­átt­unni segja að þeir búist við því að Nei-sinnar hlaði stóru fall­byss­urnar á loka­sprett­inum og að allt verði reynt til að mála sem svartasta mynd af sjálf­stæðu Skotlandi í fjöl­miðlum og opin­berri umræðu. Því sé slagnum fjarri því lokið.

 

„Búið ykkur undir að verða fyrir vonbrigðum"


Kjarninn, Alþjóða­mála­stofnun Háskóla Íslands, Norræna húsið og Nexus héldu hádeg­is­verð­ar­fund um sjálf­stæði Skotlands í októ­ber í fyrra. Á meðal fram­sögu­manna á fund­inum var Angus Robert­son, leið­togi Skoska þjóð­ar­flokks­ins á breska þing­inu. Í sam­tali við Kjarnann þá sagð­ist Robert­son vera mjög bjart­sýnn á að Skotar væru búnir að kjósa yfir sig sjálf­stæði innan við ári síðar, þrátt að allar skoð­anna­kann­anir á þeim tíma sýndu afger­andi hið gagn­stæða.

Hann sagði engan hafa trúað því á sínum tíma að Skotar gætu fengið sitt eigið þing. Það hafi síðan gerst. Þá hafi eng­inn trúað því að Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn gæti kom­ist í rík­is­stjórn. Það hafi síðan gerst. Í kjöl­farið hafi eng­inn trúað því að flokk­ur­inn gæri náð hreinum meiri­hluta á skoska þing­inu. Það hafi síðan gerst í síð­ustu kosn­ingum. „Þeir sem trúa því ekki að Skotland geti orðið sjálf­stætt ríki mega fara að búa sig undir að verða fyrir von­brigðum,“ sagði Robert­son að lokum. Svo virð­ist sem hann gæti mögu­lega haft nokkuð til síns máls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár