Klámsíður taka þátt í baráttunni um internetið

Tvær af mest sóttu klám­síðum inter­nets­ins, Pornhub og Redtube, hafa sleg­ist í hóp fjölda tækni­fyr­ir­tækja sem berj­ast gegn áformum banda­rískra fjar­skipta­fyr­ir­tækja um að hægja á þeim hluta nets­ins sem ekki borgar þeim fyrir aukin hraða. Fjöl­margar vef­síður ætla að hægja á upp­hleðslu á síðum sínum næst­kom­andi mið­viku­dag í mót­mæla­skyni við áformin og til að sýna vef­vöfr­urum við hverju þeir megi búast verði vilji fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna ofan á.

Vilja búa til „hraðbrautir"


Baráttan um inter­netið snýst um vilja stærstu fjar­skipta­fyr­ir­tækja Banda­ríkj­anna: Comcast, Verizon, Time Warner Cable og At&t, til að hagn­ast á nýjan hátt á inter­net­inu. Hugmynd þeirra gengur út á að láta vef­síður greiða sér­stök gjöld til sín til að fá aðgang að svoköll­uðum „hrað­brautum“, sem tryggja hraða upp­hleðslu á síð­unum og betri streymi á efni þeirra. Þær vef­síður sem annað hvort vilja ekki eða geta ekki greitt fjar­skipt­ar­is­unum mun verða refsað með því að hægt verður á upp­hleðslu og streymi á síð­unum, jafn­vel svo mikið að þær muni hrein­lega ekki virka. Vef­vafr­arar munu því hætta að fara inn á þær og síð­urnar í kjöl­farið deyja.

Áformin hafa vakið gríð­ar­lega athygli og reiði í Banda­ríkj­unum, enda talið að þau séu grímu­laus árás á helstu grunn­stoð­ina fyrir því að inter­netið virkar svona vel, þar ríkir full­komið jafn­ræði. Hags­muna­sam­tök sem mynduð hafa verið gegn áformum fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna segja að net-hlut­leysi (e. net-neutrality) hverfi ef þau fái að verða að veru­leika og inter­netið, eins og við þekkjum það í dag, muni deyja í kjöl­farið. Vefsíður í eigu þeirra fyr­ir­tækja sem muni borga hátt verð fyrir aukin hraða muni ein­oka inter­netið, og þar með taka yfir dag­skrár­vald þess.

Amazon, Google, Facebook og Netflix á móti


Það eru ekki bara inter­net-not­endur í Banda­ríkj­unum sem þurfa að hafa áhyggjur af þess­ari þróun. Talið er víst að fjar­skipta­fyr­ir­tæki víðar í heim­inum, meðal ann­ars í Evrópu, fylgist vel með þróun mála þar til að kanna hvort stýr­ing á hraða upp­hleðslu vef­síðna geti orðið arð­bært við­skipta­módel í fram­tíð­inni fyrir þau líka.

Banda­rísku fjar­skipta­fyr­ir­tækin, sem eru gíf­ur­lega óvin­sæl á meðal neyt­enda þar í landi fyrir að veita slaka en dýra þjón­ustu, reka nú erindi um málið fyrir banda­rísku fjar­skipta­nefnd­inni, Federal Communication Commission (FCC). Mörg stærstu tækni­fyr­ir­tæki heims­ins, til dæmis Amazon, Google, Facebook og Netflix, hafa öll mót­mælt áformunum harð­lega.

Klámið og baráttan um internetið


Þau taka þó ekki þátt í aðgerð­ar­átaki sem fjöl­mörg inter­net­fyr­ir­tæki hafa skráð sig til þátt­töku í og kall­ast „bar­áttan um inter­netið“ (e. battle for the net). Í næstu viku, nánar til­tekið mið­viku­dag­inn 10. sept­em­ber, stendur til að halda „Hægan dag“ (e. go-slow day). Vef­vafrar sem fara inn á þær síður sem taka þátt í átak­inu munu þá geta upp­lifað hvernig upp­á­halds­síð­urnar þeirra myndu virka ef hægt yrði á þeim í takt við áform banda­rísku fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna. Þeim verður síðan beint inn á síður þar sem þeir geta komið stuðn­ingi sínum við inter­net-hlut­leysi á fram­færi við ráða­menn í Banda­ríkj­unum.

Á heima­síðu átaks­ins, má sjá að risa­vef­síður á borð við Reddit, Mozilla og Etsy munu taka þátt í mót­mæl­unum. Þeim barst síðan óvæntur liðs­auki í lok síð­ustu viku þegar tvær af stærstu klám­vef­síðum heims­ins, Pornhub og Redtube, bætt­ust í hóp þeirra sem ætla að taka þátt í bar­átt­unni á mið­viku­dag­inn. Í frétt the Guardian um málið er haft eftir tals­konu Pornhub að síðan muni ekki hægja á streymi not­enda heldur verði risa­stórum skila­boðum komið fyrir á síð­unni sem allir not­endur muni þurfa að loka áður en þeir fá að svala upp­haf­legum til­gangi heim­sóknar sinnar á síð­urnar. Tals­konan segir von­ast til að ná til um 50 milljón manna á einum degi með þessum hætti.

Bæði Pornhub og Redtube eru í eigu fyr­ir­tækis sem heitir Mindgeek, sam­steypu sem er með höf­uð­stöðvar sinar í Lúx­em­borg og seg­ist vera einn af fimm stærstu band­víddar-not­endum í heimi, með um 1,7 millj­arða heim­sóknir á mán­uði.

John Oliver tók net-hlut­leysi fyrir í þætti sínum í júní með eft­ir­minni­legum hætti. Hægt er að sjá þátt­inn hér að neðan.

[embed]https://www.youtube.com/watch?v=fpbOEoRrHyU[/embed]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár