Ríkiskaup fela Bland.is að selja lausamuni ríkisins

Rík­is­kaup hafa gert sam­komu­lag við sölu­vef­inn Bland.is um að taka að sér að selja lausa­muni fyrir stofn­anir rík­is­ins. Sam­komu­lagið er gert til reynslu og gildir út maí­mánuð árið 2015. Í frétt um málið á vef Rík­is­kaupa segir að til­gangur þessa til­rauna­verk­efnis sé að „auð­velda stofn­unum sölu á lausa­munum sínum, s.s. hús­bún­aði, tölvu­bún­aði, skrif­stofu­tækjum og öðrum selj­an­legum bún­aði eða munum“.

Vegna þessa sam­komu­lags hafa Rík­is­kaup og Bland.is sett upp ákveðið verk­lag. Það felur meðal ann­ars í sér að allar stofn­anir rík­is­ins verða að stofna aðgang á Bland.is. Not­enda­nafn þeirra verður að vera RK og svo stofn­ana­númer við­kom­andi stofn­unar. Að öðru leyti skulu stofn­anir fara í einu og öllu eftir leið­bein­ingum frá Bland.is um hvernig skal staðið að sölu muna á vefnum.

Sam­komu­lagið var und­ir­ritað 22. maí síð­ast­lið­inn en Rík­is­kaup til­kynnti ekki um það á heima­síðu sinni fyrr en í dag, 5. sept­em­ber.

Hægt er sjá sam­komu­lag Rík­is­kaupa og Bland.is hér.

Bland er stærsta sölu- og mark­aðs­torg á Íslandi á net­inu og hefur verið það um ára­bil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár