Samherji græddi 22 milljarða eftir gjöld og skatta

Samherji hf. hagn­að­ist um tæpa 22 millj­arða króna á árinu 2013. Það er aukn­ing um 6,2 millj­arða króna á milli ára. Hagnaður Samherja var því 1,8 millj­arður króna á mán­uði, eftir að búið er að gera ráð fyrir öllum kostn­aði.

Rúmur þriðj­ungur hagn­að­ar­ins er til­kom­inn vegna sölu eigna og skiptir þar mestu sala dótt­ur­fé­laga Samherja á fimm skipum og útgerð við strendur Afríku á um 7,7 millj­arða króna fyrir tekju­skatt.

Alls greiddi Samherji 1,7 millj­arða króna í tekju­skatt á Íslandi og um 2,7 millj­arða króna í veiði­leyfa­gjald. Þetta er fimmta árið í röð sem allar afkomu­ein­ingar sam­stæð­unnar skila hagn­aði.

Sam­steypan velti 89,3 millj­örðum króna á síð­asta ári, sem er 440 millj­ónum krónum meira en á árinu 2012. Tæpur helm­ingur af veltu Samherja kemur frá dótt­ur­fé­lögum sam­stæð­unnar erlendis.

Í frétt um afkom­una á heima­síðu Samherja kemur fram að fjár­fest­ingar sam­stæð­unnar á síð­asta ári hefðu numið 5,1 millj­arði króna.

Segir umhverfið hafa nei­kvæð áhrif og hamla starf­semi

Í frétt­inni er einnig rætt við Þorstein Má Bald­vins­son, for­stjóra Samherja. Þar segir hann: „Sá árangur sem starfs­fólk Samherja hefur enn á ný náð er ekki síður mark­verður fyrir það að á sama tíma hafa stjórn­völd haldið áfram aðgerðum sínum gegn félögum í sam­stæð­unni. Þessar aðgerðir hafa óhjá­kvæmi­lega tekið mikla orku og tíma frá stjórn­endum og starfs­fólki sem gjarnan vildi sinna upp­byggi­legri hlutum. Ég er ekki til­bú­inn að sætta mig við að höf­uð­stöðvar alþjóð­legs sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækis geti ekki verið á Íslandi en umhverfið hér í dag er farið að hafa nei­kvæð áhrif og jafn­vel hamla okkar starf­semi.

Ég hef sagt það oft áður að sjáv­ar­út­vegur er alþjóð­leg atvinnu­grein. Vel­gengnin bygg­ist að stórum hluta á þekk­ingu og áræði starfs­fólks­ins, hvort heldur er í veiðum, vinnslu eða mark­aðs­setn­ingu. Þegar sam­visku­samt og dug­legt fólk með mikla þekk­ingu úr skóla lífs­ins leggst saman á árarnar er hægt að ná afbragðsár­angri."

Aðal­eig­endur og stjórn­endur Samherja eru Þor­steinn Már og Kristján Vil­helms­son, frændi hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár