Tæp tíu prósent áskrifenda DV hafa sagt upp áskrift

538 manns hafa sagt upp áskrift að DV á und­an­förnum tveimur vikum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Þetta eru rúm­lega tíu pró­sent allra áskrif­enda blaðs­ins, en áskrif­endur blaðs­ins eru á milli fimm og sex þús­und tals­ins. Tapaðar tekjur vegna þess­arra áskrifta eru tæpar tvær millj­ónir króna á mán­uði miðað við upp­gefið verð á áskrift á vef DV, www.dv.is. Engir nýir áskrif­endur hafa komið á móti.

Mikill styr hefur staðið um eign­ar­haldið á DV und­an­farnar tvær vikur. Þor­steinn Guðnason, sem heldur því fram að hann hafi bæði keypt hlutafé í DV og lánað háar fjár­hæðir til rekstur útgáfu­fé­lags DV á und­an­förnum miss­erum, hefur viljað fá ítök í stjórn í sam­ræmi við eign­ar­hald sitt. Reynir Trausta­son, rist­jóri og einn stærsti eig­andi DV, og hópur tengdur honum hef­ur­haft tögl og haldir í stjórn­inni til þess.

Reynir hefur sagt að á bak­við Þor­steinn standi Gísli Guð­munds­son, fyrrum eig­andi B&L. Hann hafi í raun fjár­magnað bæði hluta­bréfa­kaup hans og lán. Þá hefur komið fram að umræddur Gísli hafi einnig lánað Reyni fé til að auka við hlut sinn í DV. Reynir hefur einnig geng­ist við því að hafa fengið 15 millj­ónir króna lán­aðar frá útgerð­ar­mann­inum Guðmundi Krist­jáns­syni, kenndum við Brim, vegna sömu ástæðu.

Talið er borð­liggj­andi að nái hópur Þor­steins Guðna­sonar meiri­hluta í DV muni feðgarnir Reynir Trausta­son, rit­stjóri, og Jón Trausti Reyn­is­son, fram­kvæmda­stjóri, missa störf sín. Því til stuðn­ings er hægt að vísa í að Björn Þor­láks­son, rit­stjóri Akureyri-Viku­blaðs, hefur upp­lýst um það opin­ber­lega að honum hafi verið boð­inn rit­stjóra­stóll­inn hjá DV.

Björn Leifsson, kenndur við World Class, hefur einnig blandað sér í málið. Hann keypti rúm­lega fjög­urra pró­senta hlut í DV á síð­ustu vikum og lýsti því opin­ber­lega yfir að hann ætl­aði sér að losna við Reyni Trausta­son úr rit­stjóra­stóli. Tækist það væru bréf hans á ný til sölu.

Hlut­hafa­fundur í DV fór fram síð­ast­lið­inn föstu­dag og var búist við því að fram­tíð blaðs­ins myndi liggja fyrir eftir hann. Það varð ekki og fund­inum var frestað um viku vegna ágrein­ings um árs­reikn­ing útgáfu­fé­lags­ins. Hinn frestaði fundur fer fram næst­kom­andi föstu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár