Deutsche Bank keypti Icesave-kröfuna fyrir aðra

Þýski bank­inn Deutsche Bank, sem til­kynnt var að hefði keypt Icesave-kröfu hol­lenska seðla­bank­ans í fyrra­dag, er búinn að selja kröf­una áfram. Þetta stað­festa full­trúar Deutsche Bank og hol­lenska seðla­bank­ans í sam­tali við Kjarnann. Hvorugur bank­inn vill upp­lýsa hver end­an­legir kaup­endur eru né hversu margir þeir eru. Kjarninn hefur hins vegar heim­ildir fyrir því að þeir séu á fleiri en tveir og á meðal þeirra séu þekktir vog­un­ar­sjóðir. Kaup­verðið á eft­ir­stand­andi kröf­unum var 623 millj­ónir evra, um 96 millj­arðar króna. Þrotabú Lands­bank­ans var þegar búið að greiða 811 millj­ónir evra, um 125 millj­arða króna, inn á kröf­una.

Icesave-krafan, sem mynd­að­ist vegna greiðslna hol­lenskra yfir­valda á inn­stæðu­trygg­ingum vegna Icesave-reikn­inga Lands­bank­ans, nýtur for­gangs í bú bank­ans. Icesave-reikn­ing­arnir voru net­reikn­ingar sem bank­inn bauð upp á í Hollandi og Bret­landi sem báru mun hærri inn­láns­vexti en aðrir voru að bjóða upp á. Því flykkt­ust við­skipta­vinir til Lands­bank­ans vegna þeirra, enda ávöxtun á fé mun hærri þar en ann­ars­staðar. Þessi mikla aðsókn leiddi til þess að Icesave-inn­láns­söfn­unin varð að risa­vax­inni alþjóða­deilu þegar ljóst var að hinn gjald­þrota Lands­banki gat ekki greitt inn­stæðu­eig­endum eignir sínar strax eftir banka­hrun. Inn­stæðu­trygg­inga­sjóðir land­anna tveggja greiddu hluta inn­stæð­anna til baka og við það eign­uð­ust þeir kröfu á Lands­bank­ann. Það er sú krafa sem hol­lenski seðla­bank­inn seldi í vik­unni.

Nokkrir aðilar keyptu


Hol­lenski seðla­bank­inn til­kynnti að hann hefði selt kröf­una til Deutsche Bank. Það er hins vegar ekki alveg nákvæmt því bank­inn var ekki end­an­legur kaup­andi. Fulltrúi hol­lenska seðla­bank­ans sem Kjarninn ræddi við sagði að seðla­bank­inn hefði ráðið Deutsche Bank sem milli­göngu­að­ila. Þýska bank­anum var því falið að finna aðila sem væru reiðu­búnir til að kaupa kröf­una. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans voru nokkrir aðilar sem keyptu. Hol­lenski seðla­bank­inn vill hins vegar ekki upp­lýsa um hverjir það voru né hversu margir kaup­end­urnir voru vegna trún­að­ar­sam­komu­lags sem gert var vegna kaupanna.

Nick Bone, hjá Deutsche Bank AG, tók í sama streng. Hann vildi ekki upp­lýsa um kaup­end­urna né hversu margir þeir væru. „Deutsche Bank var að vinna sem umsjón­ar­að­ili upp­boðs til að selja kröfur ákveð­inna fjár­festa í Lands­bank­anum áfram til þriðja aðila,“ segir Bone.

Fámennur hópur sem kaupir íslenskar kröfur


Við­mæl­endur Kjarnans segja að afar sér­tækur mark­aður hafi skap­ast fyrir kröfur á fall­inn íslensk fjár­mála­fyr­ir­tæki. Að miklu leyti séu sömu fjár­mála­fyr­ir­tækin og vog­un­ar­sjóð­irnir að kaupa kröf­urnar, aðal­lega aðilar sem hafa þegar mjög sterka stöðu í kröfu­hafa­hópum fall­ina íslenskra banka. Því séu mestar líkur á að kaup­end­urnir séu úr þessum hópi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár