Fleiri ferðamenn á átta mánuðum en allt árið 2012

Erlendir ferða­menn í ágúst voru 153.400 tals­ins. Það sem af er ári hafa 699.810 manns farið um Kefla­vík­ur­flug­völl, sem er 23,5 pró­sent aukn­ing milli ára frá ára­mótum frá því sem var á sama tíma­bili í fyrra. Þótt enn sé þriðj­ungur eftir af árinu eru ferða­menn þegar orðnir fleiri en þeir voru allt árið 2012. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Ferða­manna­stofu.

Til­kynn­ingin í heild sinni:

„Þótt enn sé þriðj­ungur eftir af árinu eru erlendir ferða­menn orðnir fleiri en árið 2012, fyrir aðeins tveimur árum. Þeir voru 153.400 í nýliðnum ágúst, sam­kvæmt taln­ingum Ferða­mála­stofu í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar, sem gerir tæp­lega 700 þús­und ferða­menn frá ára­mótum.

Aukn­ingin í ágúst nemur 16,4% milli ára. Vart þarf að taka fram að aldrei hafa jafn margir ferða­menn verið hér í ágúst og nú og raunar aldrei fleiri í einum mán­uði frá upp­hafi.

Bandaríkjamenn og Þjóðverjar fjölmennir


Banda­ríkja­menn voru líkt og und­an­farna mán­uði fjöl­menn­astir eða 14,7% af heild­ar­fjölda ferða­manna í ágúst en fast á eftir fylgja Þjóð­verjar með 12,6% af heild. Skáru þessar tvær þjóðir sig nokkuð úr en næst komu Frakkar (9,8%), Bretar (7,3%), Ítalir (5,1%) og Spán­verjar 4,7%. Samtals voru 10 fjöl­menn­ustu þjóð­ernin með 69% af heild­ar­fjölda ferða­manna.

Af ein­staka þjóð­ernum fjölg­aði Banda­ríkja­mönnum, Frökkum, Kana­mönnum, Kín­verjum, Ítölum og Spán­verjum mest. Þessar sex þjóðir voru með um helm­ing af fjölgun ferða­manna í ágúst.

Tvívegis álíka fjölgun í ágúst


Ferða­menn voru ríf­lega þrisvar sinnum fleiri í ágúst í ár en þeir mæld­ust í sama mán­uði árið 2002, þegar taln­ingar Ferða­mála­stofu hófust. Fjölgun hefur verið öll ár á þessu tíma­bili, að árinu 2010 frá­töldu, og tví­vegis hefur þeim fjölgað álíka á milli ára en nú, þ.e. í ágúst 2003 og 2007. Sex sinnum á þessu tíma­bili hefur fjölg­unin verið yfir 10% á milli ára.

Þegar ein­stök mark­aðs­svæði eru skoðuð má sjá góða fjölgun frá öllum svæðum. Banda­ríkja­mönnum hefur fjölgað mest en þeir hafa hátt í þre­fald­ast. Bretar og þeir sem taldir eru sam­eig­in­lega undir „Annað“ hafa u.þ.b. tvö­fald­ast. Líkt og und­an­farin ár eru ferða­menn frá Mið- og Suður Evrópu fjöl­menn­astir í ágúst og þeim hefur fjölgað um 50% frá 2010. Norð­ur­landa­búum hefur fjölgað sínu minnst frá frá árinu 2010, eða um 17%.

546 þúsund ferðamenn frá áramótum


Það sem af er ári hafa tæp­lega 700 þús­und farið frá land­inu um Kefla­vík­ur­flug­vell, nánar til­tekið 699.810 eða um 133 þús­und fleiri en á sama tíma­bili í fyrra. Um er að ræða 23,5% aukn­ingu ferða­manna milli ára frá ára­mótum í sam­an­burði við sama tíma­bil í fyrra. Veruleg aukn­ing hefur verið frá flestum mörk­uðum; N-Amer­ík­önum og Bretum hefur fjölgað mest, hvorum um sig um u.þ.b. 35%, Mið- og S-Evr­ópu­búum um 15%, og ferða­mönnum frá öðrum mörk­uðum um 30%. Norð­ur­landa­búum hefur hins vegar ekki fjölgað í sama mæli eða um 8,6%.

Ferðir Íslendinga utan


Um 37 þús­und Íslend­ingar fóru utan í ágúst síð­ast­liðnum, nokkru færri en í júlí og nán­ast jafn margir og í ágúst í fyrra. Frá ára­mótum hafa 261 þús­und Íslend­ingar farið utan eða 8,7% fleiri en á sama tíma­bili árið 2013."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár