Kókaínhagkerfið

Kóka­ín­fram­leiðsla fer nú fram á minna land­svæði en áður, ekki síst vegna kerf­is­bund­inna aðgerða stjórn­valda í Kólumbíu þar sem mark­miðið er að þrengja að kókaín­fram­leiðslu og ná betri stjórn á þeim svæðum þar sem fram­leiðslan fer fram. Í skýrslu UNODOC, stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna sem berst gegn notkun fíkni­efna og skipu­lagðri glæp­a­starf­semi, kemur fram að í lok árs 2012 hafi ræktun kóka­laufa úr kóka­jurt­inni farið fram á 133.700 hekt­ara landi, sem er það minnsta síðan árið 1990. Í Kólumbíu nam minnkunin 25 pró­sentum, land­svæði undir kóka­lauf­aræktun fór úr 64 þús­und hekt­urum árið 2011 í 48 þús­und árið 2012. Það ár voru fram­leidd 309 tonn af hreinu kóka­ín­dufti sam­kvæmt skýrslu UNODOC, en það er minnsta magn frá 1996 sam­kvæmt opin­berum tölum.

Kókaínlöndin þrjú


Afgangur land­svæð­is­ins sem fer undir kóka­ín­fram­leiðslu er í Perú og Bólivíu, og á nokkrum öðrum stöðum á hásléttum And­es­fjalla í Suður-Ameríku sem til­heyra öðrum ríkjum. Ræktun kóka­jurt­ar­innar hefur verið reynd víða um heim en hún hefur ekki breiðst mikið út. Þó eru skil­yrði til upp­rækt­unar í Suð­austur-Afríku og í Asíu, einkum Taílandi, Kambódíu og Víetnam. En eins og fyrr segir er hjarta kóka­ín­hag­kerf­is­ins, hvað fram­leiðslu varðar, fyrst og fremst í Kólumbíu, Perú og Bólivíu.

Hinn harði heimur tekur við


Í Suður-Ameríku er vinnsla úr kóka­jurt­inni við­ur­kenndur land­bún­aður á fyrstu stigum, það er frum­vinnsla á lauf­unum sjálfum. Sú vinna nýtur virð­ingar og fær að við­gang­ast svo til óáreitt. Aðgerðir til þess að draga úr land­flæmi sem fer undir kóka­jurta­ræktun hafa þó áhrif á umfang þess­arar vinnu, en bænd­urnir byggja vinnu sína á langri hefð. Hinn harði heimur kóka­ín­iðn­að­ar­ins má segja að taki við þegar úrvinnsla úr kóka­lauf­unum hefst og ólög­leg sala á kóka­íni, duft­inu sem unnið er úr jurt­inni, fer fram. Þá breyt­ist kóka­jurta­iðn­að­ur­inn úr við­ur­kenndum land­bún­aði í glæp­sam­lega iðju í Suður-Ameríku. Mörgum kann að virð­ast þetta und­ar­legt, það er að fram­leiðslan sjálf njóti verndar og fái þannig óáreitt að við­gang­ast og verða óhjá­kvæmi­lega und­ir­rót kókaín­hag­kerf­is­ins. En þetta er flókn­ara en svo, eins og skýrsla UNODOC sýnir glögg­lega.

Mikil eftirspurn hjá vel stæðu fólki


Skipu­lögð glæp­a­starf­semi, sem veltir millj­örðum dala á ári, fer að mestu með sölu á kóka­ín­dufti til helstu mark­aðs­svæða. Stærsti ein­staki mark­að­ur­inn fyrir kókaín er í Banda­ríkj­unum en áætlað er að á bil­inu 14 til 20 millj­ónir manna um allan heim neyti kóka­íns í mis­miklum mæli. Þar af er stór hluti í Banda­ríkj­unum eða um þrjár millj­ónir manna. Önnur helstu mark­aðs­svæði kóka­íns eru Mið-Evrópa, einkum vel stætt fólk. Neysla er einnig nokkuð mikil í strand­ríkjum við Mið­jarð­ar­hafið, ekki fjarri stórum höfnum þar sem skip frá Suður-Ameríku koma til hafnar. Mesta hlut­falls­lega neyslan á kóka­íni er hins vegar mest í nágrenni við rækt­unar­stað­ina í Suður-Ameríku og einnig í Mið-Ameríku, Mexíkó og nágrenni. Kókaín hefur lengi verið mark­aðs­sett fyrir vel stætt fólk og er oft nefnt fíkni­efni ríka fólks­ins. Ástæðan er sú að efnið er dýrt á smá­sölu­mark­aði og hefur það orð­spor víða að vera ekki „of skað­legt“ þrátt fyrir að rann­sóknir hafi marg­stað­fest hið gagn­stæða.

Brasilía nýja kókaínlandið


Neysla á kóka­íni hefur vaxið mikið í Brasilíu sam­hliða upp­gangi í efna­hags­lífi und­an­far­inn ára­tug. Brasilía þekur um helm­ing alls land­flæmis Suður-Ameríku og er lang­fjöl­menn­asta ríki álf­unnar með ríf­lega 200 millj­ónir íbúa. Landið á landa­mæri að höf­uð­ríkjum kóka­ín­fram­leiðsl­unnar, Kólumbíu, Perú og Bólivíu, og í gegnum Brasilíu streymir mikið magn efna. Í skýrslu UNODOC segir að landið geti lítið gert til þess að stemma stigu við smygli á efnum til lands­ins umfram hefð­bundið landamæra­eft­ir­lit. Í ljósi mik­illar og vax­andi eft­ir­spurnar í land­inu eftir kóka­íni megi búast við enn umfangs­meiri skipu­lagðri glæp­a­starf­semi í land­inu á næstu árum. Neysla hefur sér­stak­lega auk­ist mikið meðal nem­enda í mennta­skólum og er sér­stak­lega vikið að þessu í skýrslu UNODOC. „Í nýlegri könnun á meðal mennta­skóla­nema í höf­uð­stöðum ríkja Brasilíu kemur fram að um þrjú pró­sent nem­enda hafi neytt kóka­íns,“ segir í skýrsl­unni. Þrjú pró­sent telst mjög hátt í alþjóð­legum sam­an­burði, en algeng við­miðun er á bil­inu 0,4 til 1 pró­sent. Allt yfir einu pró­senti af heild­ar­úr­taki telst mikið enda telst kókaín til harðra fíkni­efna þrátt fyrir að útbreiðsla þess sé mikil á meðal neyt­enda sem ekki telj­ast vera dæmi­gerðir fíkni­efna­neyt­endur.

Hafnirnar skipta sköpum


Samhliða hinum mikla vexti efna­hags­lífs Brasilíu hefur upp­bygg­ing á hafn­ar­mann­virkjum verið gríð­ar­lega mikil, ekki síst við Ríó. Þaðan fara stærstu flutn­inga­skipin til Evrópu, Asíu og Afríku. Í gegnum þessar flutn­inga­leiðir fer kóka­ín­duft til þess­ara svæða, þar sem glæpa­gengi taka við þeim og selja í smá­sölu, oftar en ekki eftir mikla útþynn­ingu. Í skýrslu UNODOC segir að kókaín sem selt er í smá­sölu sé í vax­andi mæli mikið útþynnt, enda hefur verið þrengt að frum­fram­leiðsl­unni á meðan neysla hefur staðið í stað eða auk­ist lítið eitt. Lög­reglu­að­gerðir víða um heim hafa auk þess sífellt orðið mark­viss­ari og hefur sam­vinna þvert á landa­mæri leitt til þess að hreint kókaín hefur verið hald­lagt mun víðar og oftar en reyndin var fyrir fáeinum árum.

Grimmdin oft nánast ólýsanleg


Þó að harð­vítug glæpa­gengi og fíkni­efna­smygl sé áber­andi í Mexíkó og í ríkjum Suður-Ameríku, ekki síst í tengslum við bar­áttu um smygl­leið­irnar inn í Banda­ríkin, er harkan mikil víða ann­ars staðar. Það versta er að lög­reglu­yf­ir­völd hafa litlum árangri náð í þess­ari bar­áttu þrátt fyrir að almenn vit­neskja um fíkni­efna­iðn­að­inn auk­ist ár frá ári. Með öðrum orðum er yfir­sýnin sífellt að verða betri og meiri um öll stig kóka­ín­iðn­að­ar­ins en neyslan minnkar ekk­ert, nema á stöku svæðum, og glæp­irnir fylgja hvar sem stigið er niður. Harkan í átök­unum hefur farið vax­andi, einkum vegna þess að skipu­lögð glæpa­sam­tök nýta hræðslu og ógn­anir til þess að halda völdum í þessum heimi án laga og reglna. Afhöfð­anir, lim­lest­ingar, mann­rán og lík­ams­árásir eru dag­legt brauð í þessum heimi og því miður eru aðrir hörmu­legir skipu­lagðir glæpir, eins og man­sal, sam­ofnir þessum heimi. Starfs­hópur undir stjórn fram­kvæmda­stjóra UNODOC, Júrí Fedotov, skil­aði af sér skýrslu í tengslum við loka­skýrslu stofn­un­ar­innar fyrir árið 2014. Í henni kemur fram að „boð og bönn“ virki ekki sem skyldi og að stríð gegn fíkni­efna­gengjum skili litlum sem engum árangri. Þá tak­ist ekki að upp­ræta land­læga spill­ingu nálægt helstu fram­leiðslu­svæðum kóka­íns í Suður-Ameríku og meðan svo sé verði erfitt að ná tökum á helstu svæðum þar sem gengin starfi og skipu­leggi starf­semi sína. Breyta þurfi um aðferða­fræði og ein­blína á for­varnir og upp­lýs­ingu. Marg­sannað sé að fíkni­efni eins og kókaín séu heilsu­spill­andi og stór­hættu­leg. Hamra þurfi á þessum skila­boðum í gegnum skipu­lagt starf og reyna þannig með lang­tíma­mark­mið að leið­ar­ljósi að draga úr eft­ir­spurn eftir þessum vágesti í sam­fé­lagi manna sem kóka­ínið er.

Þetta er styttri útgáfa af umfjöll­un­inni. Hana má finna í fullri lengd í Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár