Tíu fulltrúar fyrir rúmlega hundrað þúsund manns

Und­an­farnar vikur hafa borist fregnir af því að ungt fram­sókn­ar­fólk hafi sagt sig úr ­flokknum vegna umræð­unnar um mosku í Sogamýri, sem komst í hámæli fyrir sveit­ar­stjórnar­kosn­ing­arnar í maí. Skemmst er að ­minn­ast harð­orðrar álykt­unar Sambands ungra fram­sókn­ar­manna í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga, þar sem ung­liða­hreyf­ing flokks­ins lýsti yfir full­komnu van­trausti á ­Svein­björgu Birnu Svein­björns­dóttur, odd­vita flokks­ins í Reykja­vík.

Ung­liða­hreyf­ingar gam­al­grónu stjórn­mála­afl­anna hafa yfir­leitt verið rót­tækar og hafa oft gagn­rýnt flokks­for­yst­una eða talað fyrir málum sem ekki hafa kom­ist á dag­skrá hennar. Í því sam­hengi má til dæmis nefna sölu áfengis í mat­vöru­búðum, sem ungir sjálf­stæð­is­menn hafa barist fyrir að verði leyfð í mörg ár án þess að flokk­ur­inn, sem hefur setið á valda­stóli meira eða minna síð­ustu ára­tugi, aðhaf­ist nokkuð.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_07_24/25[/embed]

Reglu­lega koma upp mál þar sem ung­liða­hreyf­ingar flokk­anna sjá sig knúnar til að gagn­rýna flokks­for­yst­una opin­ber­lega. Ungum Vinstri grænum gramd­ist það til dæmis mjög að Ísland sækti um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á meðan flokkur­inn var í rík­is­stjórn og viðr­uðu þá afstöðu sína ítrekað. Nýlega gagn­rýndu Ungir jafn­að­ar­menn for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir ummæli sín um þjóð­kirkj­una og þegar Davíð Oddsson tal­aði fyrir fjöl­miðla­frum­varp­inu árið 2004 voru ung­liða­hreyf­ingar Sjálf­stæð­is­flokks­ins mót­fallnar grund­vall­ar­at­riðum aðgerð­anna sem ráð­ast átti í gegn fjöl­miðlum Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar.

En kann að vera að ungt fólk hafi ekki þau áhrif sem það ætti að hafa í krafti fjölda síns? Ætti rúm­lega ­fimmt­ungur fólks á kjör­skrá ekki að eiga sína full­trúa á þingi?

Árni Helgason, lög­maður og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins, rit­aði áhuga­verðan pistil í Kjarnann í síð­ustu viku. Þar bendir hann á að ekki séu margir þing­menn á Alþingi undir fer­tugu; það sé af sem áður var þegar helstu stjórn­mála­leið­togar á Íslandi voru komnir í valda­stöður áður en þeir urðu hálf­fertugir. „Í Sjálf­stæð­is­flokknum í dag er einn þing­maður undir fer­tugu, í Sam­fylk­ing­unni er yngsti þing­mað­ur­inn 39 ára og í Vinstri grænum er for­maður flokks­ins í leið­inni lang­yngsti þing­mað­ur­inn, 38 ára, og eini þing­maður flokks­ins sem er yngri en 45 ára,“ skrif­aði Árni og spyr hvernig það standi á því að heil kyn­slóð sé nán­ast ekki með.

Kjarninn tók saman með­al­aldur þing­heims, bæði í sögu­legu ljósi og miðað við önnur þjóð­þing á Norð­ur­löndum. Lestu Kjarnann hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár