Hvað varð um ósongatið?

Þeir ætl­uðu ekki að trúa sínum eigin augum, vís­inda­menn­irnir á suð­ur­pólnum sem voru að gera rann­sóknir á loft­hjúpi jarðar árið 1985. Fyrsta mæl­ingin sýndi svo lítið magn ósons yfir haus­unum á þeim að mæli­tækin hlutu að vera biluð. Nokkrum mán­uðum síðar bár­ust ný mæli­tæki og sýndu sömu nið­ur­stöður: Magn ósons yfir heim­skaut­inu var svo lítið að af því hlyti að steðja vá.

Svona segja áhuga­menn um gatið á óson­lag­inu sög­una um hvernig þetta vanda­mál varð fyrst við­ur­kennt í fræða­sam­fé­lag­inu. Aukin þynn­ing óson­lags­ins hafði verið til umræðu í um ára­tug áður, en aldrei höfðu feng­ist eins drama­tískar mæl­ingar og árið 1985.

Um svipað leyti var að verða mikil vit­und­ar­vakn­ing um umgengni mann­fólks á jörð­inni. Ári eftir að sannað var að óson­lagið var götótt sprakk heill kjarna­ofn í Úkraínu og meng­aði gríð­ar­stórt land­svæði svo að þar verður ekki hægt að búa næstu 600 árin. Þremur árum síðar kom í ljós að gríð­ar­stór rusla­eyja flýtur með haf­straumum Kyrra­hafs­ins og nú, rúmum 20 árum síðar, erum við búin að hita and­rúms­loftið svo mikið að sífrer­inn í norð­an­verðu Rúss­landi er far­inn að bráðna og auka á gróð­ur­húsa­á­hrifin.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_07_17/71[/embed]

Lestu nánar um gatið á óson­lag­inu í nýj­ustu útgáfu Kjarnans hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár