Alvöru gammarnir sagðir vera mættir til Íslands

Félög eða sjóðir tengdir vog­un­ar­sjóðnum Elliott Mana­gement hafa eign­ast kröfur á fallna íslenska banka und­an­farin miss­eri. Kjarninn hefur fengið það stað­fest að þeir aðilar eigi óveru­legar kröfur á þrotabú Lands­bank­ans. Heim­ild­ar­menn Kjarnans full­yrða auk þess að sömu aðilar, ann­að­hvort í gegnum beina eign­ar­að­ild á kröfum eða með því að láta alþjóð­lega banka halda á kröf­unum fyrir sig, séu orðnir umsvifa­miklir innan ann­ars þrota­bús.

Talsmenn hinna þriggja stóru þrota­búa; Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans, vildu ekki tjá sig um ein­stakar kröfur eða eig­endur þeirra opin­ber­lega þegar Kjarninn sendi þeim fyr­ir­spurn um málið. Kjarninn sendi fyr­ir­spurn til Elliott Mana­gement og spurð­ist fyrir um umsvif sjóðs­ins á Íslandi. Þeirri fyr­ir­spurn hefur ekki verið svarað.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_07_17/10[/embed]

Hinn dæmigerði hrægammasjóður


Vog­un­ar­sjóð­ur­inn Elliott Mana­gement er kannski ekki nafn sem hvert manns­barn kann­ast við. Þvert á móti hljómar hann eins og hver annar slíkur sjóður. En það er hann ekki. Eitt sem sker hann frá öðrum er sú stað­reynd að hann ávaxtar fé við­skipta­vina sinna um 14,6 pró­sent að með­al­tali á ári, sem er mun meira en all­flestir sam­keppn­is­að­ilar hans.


Hin ástæðan fyrir því að sjóð­ur­inn er öðru­vísi er að hann hefur ein­beitt sér að því að fjár­festa í skuldum ríkja, eða fyr­ir­tækja innan ríkja, sem glíma við neyð og jafn­vel greiðslu­þrot. Hann er því hold­gerv­ingur hug­taks­ins hrægamma­sjóður.


Elliott-sjóð­ur­inn gefur sig út fyrir að fara ein­vörð­ungu inn í ríki sem hafi efni á því að greiða skuldir sínar en hafi ákveðið að gera það ekki. Í ljósi þess að upp­gjör íslensku þrota­bú­anna snýst ein­vörð­ungu um útdeil­ingu fjár­magns sem sann­ar­lega er til inni í þeim, hversu mikið fer til kröfu­haf­anna og hversu mikið situr eftir á Íslandi, fellur Ísland sann­ar­lega innan þess mengis sem Elliott-sjóð­ur­inn setur sér.


Vog­un­ar­sjóð­ur­inn hefur gert sig gild­andi á Argent­ínu, og hótar þjóð­inni nú alls­herjar þjóð­ar­gjald­þroti.

Lestu ítar­lega umfjöllun um Elliott Mana­gement í nýj­ustu útgáfu Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár