Söluvirði Húsasmiðjunnar fór allt í skatta og sekt

Gamla Húsa­smiðjan, sem nú heitir Holta­vegur 10 ehf., hefur greitt sam­tals rúm­lega millj­arð króna vegna end­ur­á­lagn­ingu skatta og sam­keppn­is­sektar á und­an­förnum árum. Það þýðir að allar eignir félags­ins, að með­töldum þeim 800 millj­ónum króna sem feng­ust þegar Húsa­smiðjan var seld út úr félag­inu í árs­lok 2011, hafa farið í að greiða skatta og sektir.

11,2 millj­örðum breytt í hlutafé

Húsa­smiðjan lenti í fangi kröfu­hafa sinna eftir banka­hrun. Langstærstur kröfu­haf­anna var Lands­bank­inn. Í kjöl­farið var 11,2 millj­örðum króna af skuldum félags­ins breytt í nýtt hlutafé. Eign­ar­halds­fé­lagið Vestia, þá í eigu Lands­bank­ans, eign­að­ist við þetta Húsa­smiðj­una sem fylgdi því svo inn í Fram­taks­sjóð­inn þegar félagið var lagt þangað inn gegn stórum eign­ar­hlut í sjóðnum. Aðrir eig­endur Fram­taks­sjóðs­ins eru helstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið til­kynnti í morgun að gamla Húsa­smiðjan hefði náð sátt við sam­keppn­is­yf­ir­völd sem fól í sér að hún við­ur­kenndi að hafa brotið sam­keppn­is­lög með umfangs­miklu ólög­mætu sam­ráði við Byko. Þar sem gamla Húsa­smiðjan við­ur­kenndi brot sitt og var til­búin að gera sátt taldi Sam­keppn­is­eft­ir­litið rétt­læt­an­legt að leggja á félagið lægri stjórn­valds­sekt en ella. Það var því ákveðið að hún yrði 325 millj­ónir króna. Málið er afrakstur marg­hátt­aðra aðgerða, meðal ann­ars hús­leita og sím­hler­anna, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið réðst í vorið 2011 vegna gruns um sam­keppn­is­brot hjá Húsa­smiðj­unni, Byko og Úlfinum.

Rúmlega 700 millj­ónir króna vegna öfugs sam­runa

Þetta er ekki eina greiðslan sem gamla Húsa­smiðjan hefur þurft að greiða á und­an­förnum árum. Í lok árs 2011 til­kynnti Rík­is­skatt­stjóri að Húsa­smiðjan skuld­aði rúm­lega 700 millj­ónir króna í skatta vegna svo­kall­aðs öfugs sam­runa sem fyrrum eig­endur hennar höfðu ráð­ist í. Í slíkum sam­runa felst að eign­ar­halds­fé­lag er sett á fót og það kaupir rekstr­ar­fé­lag með lánsfé. Eign­ar­halds­fé­lagið er síðan látið renna inn í rekstr­ar­fé­lagið og þar með er skuld­unum sem stofnað var til við kaupin komið inn í rekst­ur­inn sem þær voru not­aðar til að kaupa.

Til­kynn­ing um end­ur­á­lagn­ingu skatt­anna kom þegar langt var liðið á sölu­ferli Húsa­smiðj­unnar, en danska bygg­inga­vöru­versl­un­ar­keðjan Bygma var þá við að kaupa hana. Vegna skatta­vand­kvæð­anna var rekstur Húsa­smiðj­unnar settur yfir á nýja kenni­tölu, 2,5 millj­arðar króna af skuldum hennar líka og nýja kennitalan seld til Bygma fyrir 800 millj­ónir króna.

Eftir í gömlu Húsa­smiðj­unni voru skildar eignir sem voru metnar á 240 millj­ónir króna og kaup­verðið, 800 millj­ónir króna. Þetta var meðal ann­ars skilið eftir til að borga skatta­skuld­ina og mögu­lega sekt vegna sam­keppn­is­brota. Nú er ljóst að nán­ast allt þetta fé hið minnsta hefur farið í að greiða þennan kostnað. Að teknu til­liti til þessa þá fékk fyrrum eig­andi Húsa­smiðj­unnar, Fram­taks­sjóður Íslands, ekk­ert fyrir fyr­ir­tækið þegar það var selt til Bygma í lok árs 2011.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár