Kínverskar dyr opnast upp á gátt fyrir íslenska neytendur

Íslend­ingar hafa nú fengið toll­frjálsan aðgang að risa­vöxnum kín­verskum mark­aði og geta verslað að vild toll­frjálst hinar ýmsu vörur, þar á meðal raf­tæki, fatnað og ýmis­legt fleira. Þetta er ekki síst hægt í gegnum stórar vef­versl­anir, eins og Alibaba.com, sem hafa marg­vís­legar alþjóð­legar vörur til sölu á góðu verði. ­Frí­versl­un­ar­samn­ing­ur­inn tók gildi 1. júlí síð­ast­lið­inn en hann kveður á um nið­ur­fell­ingu tolla á öllum helstu útflutn­ings­afurðum Íslend­inga, í flestum til­vikum frá upp­hafs­degi gild­is­töku samn­ings­ins. Það er að með­al­tali um 10 til 20 pró­senta lækkun á vörum frá því sem var fyrir gild­is­töku samn­ing­ins á öllum vörum sem koma frá Kína og voru áður toll­skyldar.

Allar sjáv­ar­af­urðir verða toll­frjálsar, en algengir tollar á þeim eru á bil­inu 10-12%. Tollar á fáeinum vörum falla niður í áföngum, á fimm eða tíu árum. Um 90% útflutn­ings til Kína eru sjáv­ar­af­urðir. Líkt og í öðrum frí­versl­un­ar­samn­ingum fellir Ísland niður tolla á öllum vörum, að und­an­skildum ákveðnum land­bún­að­ar­af­urðum. Um 70% af tolla­línum í íslensku toll­skránni bera nú þegar engan toll, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá toll­stjóra.

Mikil tækifæri


Áhrif samn­ings­ins á neyt­enda­markað og hefð­bundin dag­leg við­skipti ein­stak­linga og minni fyr­ir­tæki gætu orðið mikil ef Íslend­ingar nýta sér þau tæki­færi sem í samn­ingnum fel­ast. Tollar falla niður á öllum helstu raf­tækjum, fatn­aði og ýmsum öðrum vörum sem fólk kaupir dags dag­lega í búðum hér á landi. Í ljósi þess hvernig vef­verslun hefur verið að þró­ast í Kína þá felur samn­ing­ur­inn í sér mikla opnun í vef­verslun, ekki síst í gegnum vef­versl­an­irnar á vefslóð­unum Alibaba.com og Ali­ex­press.com, báðar undir sama hatti, en eitt mesta úrval sem fyr­ir­finnst á vefnum. Andrés Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka versl­unar og þjón­ustu, segir samn­ing­inn vissu­lega opna stórar dyr fyrir ein­stak­linga og fyr­ir­tæki hér á landi og að hann eigi, ef allt er eðli­legt, að leiða til þess að vöru­verð lækki. „Við höfum verið að berj­ast fyrir því að vöru­gjöld séu einnig skoðuð sér­stak­lega, lækkuð og end­ur­skoðuð. Efnahags- og fjár­mála­ráð­herra hefur sýnt áhuga á þessum málum og von­andi líður ekki langur tími þar til vöru­gjöldin hafa einnig verið lækkuð, til hags­bóta fyrir neyt­endur,“ segir Andrés.

Hann segir að erfitt sé að greina nákvæm­lega hver áhrifin af samn­ingnum við Kína verða, en óum­deilt sé að mikil tæki­færi geti falist í honum fyrir íslenska neyt­endur. „Vonandi styrkir þessi samn­ingur íslenskt atvinnu­líf til fram­tíðar litið,“ segir Andrés. Dæmi um mikil áhrif samn­ing­ins er að tollur á fatnað frá Kína, um 15 pró­sent, fellur niður. Þannig ætti verð á fatn­aði að lækka hratt, með til­heyr­andi áhrifum á vísi­tölu neyslu­verðs og þar með verð­tryggðar skuld­bind­ingar.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_07_10/18[/embed]

Þetta er örstutt brot úr umfjöllun Kjarnans um breyt­ing­arnar á neyt­enda­mark­aði vegna frí­versl­unar við Kína. Lestu hana í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár