Marel borgar sekt vegna brota gegn upplýsingaskyldu

Marel hf. braut gegn upp­lýs­inga­skyldu­á­kvæði laga um verð­bréfa­við­skipti þegar félagið birti ekki taf­ar­laust inn­herj­a­upp­lýs­ingar um upp­sögn Theo Hoen sem for­stjóra og ráðn­ingu Árna Odds Þórð­ar­sonar í starfið í hans stað. Marel féllst á að greiða sátt vegna máls­ins að fjár­hæð 3,3 millj­ónir króna.

Máls­at­vik eru þau að þann 30. októ­ber 2013 til­kynnti Marel Fjár­mála­eft­ir­lit­inu (FME) um að tekin hefði verið ákvörðun um frestun á birt­ingu ákveð­inna inn­herj­a­upp­lýs­inga, en Marel er skráð á íslenskan hluta­bréfa­markað. Í sam­komu­lag­inu sem FME og Marel gerðu vegna brots­ins, og var gert 30. apríl en fyrst birt í morgun, segir: „Hinn 1. nóv­em­ber 2013, um kl. 13:20, varð máls­að­ila ljóst að trún­aður um umræddar inn­herj­a­upp­lýs­ingar var ekki lengur tryggður. Sama dag, kl. 15:25, var birt til­kynn­ing með umræddum upp­lýs­ingum. Liðu því um 125 mín­útur frá því að máls­að­ila varð ljóst að skil­yrði frest­unar á birt­ingu inn­herj­a­upp­lýs­inga voru ekki lengur til staðar þar til upp­lýs­ing­arnar voru gerðar opin­berar í sam­ræmi við 1. mgr. 122. gr. vvl. Máls­að­ili hafði sam­band við Nasdaq OMX Iceland hf. (Kaup­höllin) kl. 13:47 og óskaði eftir að við­skipti með hluta­bréf í félag­inu yrðu stöðvuð tíma­bundið“.

Ástæða þess að við­skiptin voru stöðvuð tíma­bundið var að frétta­vef­ur­inn DV.is hafði greint frá yfir­vof­andi ráðn­ingu Árna Odds í starf for­stjóra Marel. Ljóst var að um mögu­lega verð­mynd­andi inn­herj­a­upp­lýs­ingar væru að ræða og að þær væru farnar að leka út áður en til­kynnt hefði verið um þær opin­ber­lega. Því var ákveðið að loka fyrir við­skiptin. Um 300 millj­óna króna við­skipti voru með bréf í Marel eftir að DV birti frétt sína og þar til að við­skipti með þau voru stöðvuð.

Hægt er að lesa til­kynn­ingu FME um sam­komu­lagið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár