Ríkissjóður sparar sér rúmlega milljarð

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið sendi í gær frá sér frétta­til­kynn­ingu þess efnis að rík­is­sjóður hefði með góðum árangri gefið út skulda­bréf í evrum. Um var að ræða fyrstu opin­beru útgáfu rík­is­sjóðs í Evrópu frá árinu 2006.

Útgáfan var upp á 750 millj­ónir evra, um 116 millj­arða króna, og er til sex ára. And­virðið á að not­ast til að for­greiða tví­hliða lán sem Norð­ur­löndin veittu Íslend­ingum í tengslum við efna­hags­á­ætlun íslenskra stjórn­valda og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins í lok árs 2008. Vextir nýju lán­anna eru um eitt pró­sent lægri en vextir gömlu lán­anna og því minnkar vaxta­kostn­aður rík­is­ins um rúm­lega 1,1 millj­arð króna á árs­grund­velli við töku nýju lán­anna.

Vaxta­gjöld rík­is­sjóðs eru þó enn mjög há, enda skuldir hans enn miklar í kjöl­far efna­hags­hruns­ins haustið 2008. Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2014 voru vaxta­gjöld rík­is­sjóðs á því ári sögð vera 75,5 millj­arðar króna.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_07_03/1[/embed]

Góðar fréttir fyrir bankanna


Vel heppnuð útgáfa rík­is­sjóðs, og sú mikla umfram­eft­ir­spurn sem var eftir henni, eru góðar fréttir fyrir íslensku bank­anna. Þeir hafa und­an­farin ár verið að feta sig inn á erlenda fjár­mögn­un­ar­mark­aði og þurft að greiða hátt verð fyrir þá fjár­mögnun sem þeir hafa sótt þangað, þ.e. þegar slíkt hefur tek­ist. Á sama tíma og bankar frá Írlandi, Ítalíu, Spáni og Grikk­landi, evru­löndum sem höfðu lent í gríð­ar­legum efna­hags­legum hremm­ingum, gátu gefið út skulda­bréf sem lækk­uðu fjár­magns­kostnað þeirra hefur útgáfa íslensku bank­anna fyrst og síð­ast verið til að sýna fram á þeir gætu gefið út bréf úti í hinum stóra heimi.

Í byrjun maí til­kynnti Arion banki til að mynda að hann ætl­aði að fresta 300 til 500 milljón evra útgáfu í Evrópu, sem átti að vera til þriggja ára, vegna þess að kjörin sem bank­anum bauðst voru allt of dýr.

Þær hindr­anir sem helst hafa staðið í vegi fyrir að íslensku bank­arnir geti fengið boð­leg kjör eru að mestu leyti heima­til­búnar. Íslenska krónan, láns­hæf­is­mat íslenska rík­is­ins og skortur á trú­verð­ugri áætlun um losun gjald­eyr­is­hafta eru atriði sem skiptu þar miklu máli. Með vel heppn­aðri útgáfu rík­is­sjóðs eru vonir bundnar við það innan íslenska fjár­mála­geirans að kjör banka muni batna tölu­vert í kjöl­farið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár