Jeltsín, Reagan og Michael Douglas á HM

Myndir þú nefna barnið þitt í höf­uðið á Boris heitnum Jeltsín?

Það gerðu for­eldrar fót­bolta­manns­ins Yeltsin Tejeda frá Kosta­ríku, sem er fæddur í mars 1992. Móðir drengs­ins var svo hrifin af Jeltsín, sem þá var nýorð­inn for­seti hins glæ­nýja Rúss­lands. Sov­ét­ríkin hrundu á jóla­dag 1991. Við það hvarf Mikhaíl Gor­bat­sjov frá og Boris Jeltsín tók við sem for­seti lands­ins eftir mikið valda­brölt. Jeltsín var mjög vin­sæll í upp­hafi og mamma Yeltsins litla Tejeda var ein þeirra sem heill­uð­ust af honum.

Spurn­ingin er hvort hún hafi enn verið jafn hrifin af honum þegar hann lét af emb­ætti á gaml­árs­dag 1999.

Í valda­tíð Jeltsíns gekk Rúss­lands í gegnum ýmsar hremm­ingar, meðal ann­ars vegna hinna gríð­ar­lega hröðu umskipta frá komm­ún­isma til einka­væð­ingar og kap­ít­al­isma. Jeltsín stóð líka í hern­að­ar­brölti; réð­ist inn í Téténíu í des­em­ber 1994, sem var upp­hafið að ára­löngu blóð­baði með miklu mann­falli og eyði­legg­ingu.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_07_03/64[/embed]

„Boris Yeltsin drunk“


Hann er í það minnsta ábyggi­lega ekki efstur á óska­list­anum hjá mörgum nýbök­uðum for­eldrum í nafna­leit. Í dag virð­ist inter­netið helst muna eftir Jeltsín sem fylli­byttu. Þegar maður slær inn nafnið Boris Yeltsin á Google birtir leitar­vélin manni sjálf­krafa orðin „Boris Yeltsin drunk“.
Bill Clinton Banda­ríkja­for­seti sagði frá atviki sem gerð­ist í opin­berri heim­sókn Jeltsíns vestur um haf árið 1995. Leyni­þjón­ustu­menn fundu rúss­neska for­set­ann blind­fullan fyrir utan bústað sinn við Hvíta húsið í Washington. Hann var á nær­bux­unum einum og ætl­aði að panta sér leigu­bíl til að ná sér í pítsu.

Ronaldo nefndur eftir Reagan


En Yeltsin Tejeda er ekki eini fót­bolta­mað­ur­inn á HM 2014 sem ber nafn sál­ugs for­seta. Sjálfur Cristiano Ronaldo, fyr­ir­liði Portú­gala og núver­andi hand­hafi FIFA Ballon d‘Or (verð­launa fyrir besta leik­mann heims), er nefndur í höf­uðið á Ronald Reagan Banda­ríkja­for­seta 1981-1989.

Ronaldo er fæddur árið 1985, sem má segja að hafi verið hátindur Reagans á valda­stóli eftir að hann var endur­kjör­inn með stór­sigri á Walter Mondale í for­seta­kosn­ing­unum 1984. Kannski voru for­eldrar Ronaldos, sem þá bjuggu á smá­eyj­unni Madeira í Atl­ants­hafi, hrifnir af slag­orði Reagans „Morning in America“, þegar þau áttu Cristiano litla í febr­úar 1985.
Helsti keppi­nautur Ronaldos um nafn­bót­ina „besti fót­bolta­maður heims“ er auð­vitað Lionel Messi frá Argent­ínu. Messi er fæddur 1987 og er nefndur í höf­uðið á banda­ríska popp­söngv­ar­anum Lionel Richie, sem þá var gríð­ar­lega vin­sæll um allan heim.

Hefð fyrir því að skíra í höfuðið á frægu fólki


Í Brasilíu er ein­stak­lega mikil hefð fyrir því að skíra börn í höf­uðið á frægu fólki. Brasil­íski hægri bak­vörð­ur­inn Maicon er einn þeirra. Hann heitir fullu nafni Maicon Douglas Sisen­ando og er fæddur árið 1981. For­eldr­arnir eru miklir aðdá­endur Hollywood-leik­ar­ans Michaels Douglas og nefndu dreng­inn eftir honum.

Nafn­giftin fór að vísu í handa­skolum því þjóð­skrá í Brasilíu skráði hann sem Maicon en ekki Michael, kannski af því að þannig er auð­veld­ara að bera nafnið fram á portú­gölsku. Bróðir Maicons Douglas ber líka flott nafn: Hann heitir Marlon Brando.

Af hverju til­einka Íslend­ingar sér ekki svona nafna­val – að minnsta kosti fyrir fót­bolta­fólk? Ég vil sjá lands­liðs­fyr­ir­lið­ana Gor­bat­sjov Svein­björns­son og Margréti Thatcher Sig­urð­ar­dóttur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár