Spes: Selur fjölskylduna og húsið til að halda Ochoa

Frammi­staða Guill­ermo Ochoa, mark­varðar mexíkóska lands­liðs­ins, á HM í Brasilíu hefur vakið verð­skuld­aða athygli. Hann sýndi mörg snilld­ar­til­þrif á milli stang­anna á heims­meist­ara­mót­inu, til að mynda á móti gest­gjöfum Brasilíu, en lið hans féll óverð­skuldað úr keppni á HM í vik­unni er það tap­aði fyrir sig­ur­strang­legu liði Hol­lend­inga. Fyrir heims­meist­ara­mótið spil­aði Ochoa með franska lið­inu Ajaccio, en samn­ingur hans við liðið rann út skömmu áður en HM í Brasilíu hófst.

Hæfi­leikar Ochoa hafa vakið athygli margra stór­liða í Evrópu, sem renna nú hýru auga til mark­varð­ar­ins, en þeirra á meðal ku vera ensku úrvals­deild­ar­liðin Arsenal og Liverpool.

Einn eld­heitur stuðn­ings­maður Ajaccio hefur nú brugðið á það ráð að aug­lýsa fjöl­skyld­una sína og húsið til sölu á net­inu svo að mark­mað­ur­inn fari hvergi. Sölu­and­virðið, litlar sextán millj­ónir Banda­ríkja­dala, hyggst hann nefni­lega láta renna til Ajaccio svo að liðið geti borgað Ochoa laun sem nema sex­tíu þús­und sterl­ingspundum á viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár