Vill að hámarkseign í banka verði fimmtungur

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, vill selja allt að 30 pró­senta hlut í Lands­bank­anum á næstu tveimur árum. Hann er einnig þeirrar skoð­unar að ríkið eigi að eiga allt að 40 pró­senta hlut í bank­anum í fram­tíð­inni og að stefna eigi að dreifðri eign­ar­að­ild á öðrum hlutum hans.

Að mati Bjarna kemur til greina að setja hámark á eign­ar­hlut hvers og eins í Lands­bank­anum til að koma í veg fyrir þau mis­tök sem gerð voru síð­ast þegar íslenskir bankar voru einka­væddir og litlir hópar náðu fullum yfir­ráðum yfir þeim öllum. Spurður hver slíkur hámarks­hlutur gæti orðið segir Bjarni að hann gæti verið tíu til tutt­ugu pró­sent.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_07_03/16[/embed]

Heimild til staðar í lögum

Heimild hefur verið í lögum til þess að að selja allt að 28 pró­senta hlut í Lands­bank­anum. Bjarni segir tíma­bært að huga að því að nýta þá heim­ild. „Ég vil að sú heim­ild sé til staðar í næstu fjár­lögum líka. Við þurfum þó líka að ræða málin í stærra sam­hengi og spyrja okkur hvernig við viljum að fjár­fest­ing­ar­um­hverfið fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki á Íslandi verði til lengri tíma. Við eigum eftir að botna umræð­una um það, hvaða lær­dóm við ætlum að draga af því sem gerð­ist við síð­ustu sölu bank­anna og það sem gerð­ist hérna í aðdrag­anda hruns­ins.
Í því sam­bandi finnst mér að við eigum að leggja upp með dreifð­ara eign­ar­hald og setja þak á hámarks­eign­ar­hlut. Að lagt verði upp með að ríkið haldi um 40 pró­senta hlut í rík­is­bank­anum Lands­banka en að hann verði að öðru leyti skráður og í dreifðu eign­ar­haldi. Ég er ekki end­an­lega búinn að setja það niður fyrir mig hvað hámarks­eign­ar­hlut­ur­inn ætti að vera en mér finnst alveg koma til greina að hann gæti verið tíu til tutt­ugu pró­sent.“

Þetta er örstutt brot úr ítar­legri umfjöllun Kjarnans um mögu­lega sölu íslenskra fjár­mála­fyr­ir­tækja. Lestu hana í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár