Endanlegur TISA-samningur verður gerður opinber

Utan­rík­is­ráðu­neytið deilir ekki mati alþjóð­legra stétt­ar­fé­laga sem telja að TISA-sam­komu­lagið muni auka hagnað alþjóð­legra stór­fyr­ir­tækja á kostnað rétt­inda þeirra og hag­sæld þeirra sem verra hafa það. Mark­miðið með þátt­töku Íslands í TISA-við­ræð­unum er að gera íslensk fyr­ir­tæki sem stunda þjón­ustu­við­skipti „betur sam­keppn­is­hæf á heims­vísu og draga úr við­skipta­hindr­unum“. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um TISA-við­ræð­urnar.

Ráðu­neytið svarar því ekki beint hvort Ísland sé að gefa frá sér rétt til aðgerða með því að taka þátt í TISA-sam­komu­lag­inu, en alþjóð­leg stétt­ar­fé­lög hafa gagn­rýnt að það muni koma í veg fyrir að rík­is­stjórnir geti gripið til aðgerða á þjóð­rétt­ar­legum grunni á þeim sviðum sem sam­komu­lagið mun ná yfir. Í svari ráðu­neyt­is­ins við þeirri spurn­ingu segir: „Ísland, í gegnum þátt­töku sína í TISA við­ræð­unum, hefur tæki­færi til þess að hafa áhrif á nið­ur­stöðu samn­ings­ins. Mik­il­vægt er að í samn­ingum sé tekið til­lit til hags­muna íslenskra fyr­ir­tækja og tryggja sem best aðgengi íslenskra þjón­ustu­veit­enda á erlendum mörk­uðum. Sem aðilar að GATS og öðrum frí­versl­un­ar­samn­ingum höfum við geng­ist við svip­uðum skuld­bind­ingum.“
Utan­rík­is­ráðu­neytið svarar því heldur ekki beint hversu margir emb­ætt­is­menn komi að TISA-við­ræð­unum: „Eins og venja er með samn­ings­við­ræður af þessu tagi er eng­inn einn með málið, heldur er þetta sam­starfs­verk­efni utan­ríkis­ráðu­neyt­is­ins, fagráðu­neyta og und­ir­stofn­ana þeirra auk fasta­nefndar Íslands í Genf. Þannig eru margar hendur sem koma að þessu verk­efni, sam­hliða öðrum.“

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_06_26/24[/embed]

Hagsmunir fyrirtæki og aðgengi mikilvægir


Meg­in­á­hersla Íslands í við­ræð­unum er á að ná sem bestum kjörum fyrir fyr­ir­tæki á sviði hátækni og orku­mála og á sviði alþjóð­legra sjó­flutn­inga. „Ísland og Noregur standa sam­eigin­lega fyrir hug­myndum vegna orku­tengdrar þjón­ustu en íslensk fyr­ir­tæki eiga mik­illa hags­muna að gæta í útflutn­ingi á þjón­ustu tengdri jarð­hita og vatns­afls­virkj­unum. Þá hefur utan­rík­is­ráðu­neytið kallað eftir upp­lýs­ingum um hags­muni íslenskra fyr­ir­tækja á sviði þjón­ustu­við­skipta erlendis í sam­starfi við ... hags­muna­sam­tök fyr­ir­tækja á þessu sviði,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins, sem Urður Gunn­ars­dóttir, fjöl­miðla­full­trúi þess, er skrifuð fyrir.

Í svar­inu segir að til­boð Íslands í við­ræð­unum sé að mestu leyti hið sama og lagt var fram í Doha-samn­inga­við­ræð­unum um aukið frelsi í heims­við­skiptum, sem fóru fram innan Alþjóða­við­skipta­stofn­un­ar­innar og hófust árið 2001. Patt­staða hefur verið uppi í þeim við­ræðum árum saman, aðal­lega vegna þess að mörg ríki, meðal ann­ars Ísland, hafa lagt áherslu á að vernda rétt sinn til að nið­ur­greiða land­búnað. Eini mun­ur­inn á Doha og TISA-til­boð­inu er sá að „metn­aði Íslands á sviði orku­tengdrar þjón­ustu er bætt við“.

Þetta er brot úr áfram­hald­andi umfjöllun Kjarnans um TISA-við­ræð­urnar. Lestu hana í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár