Diambars: Þar sem knattspyrnan gefur von

Flýttu þér að skrifa, Ousseynou. Þetta gengur of hægt.“ Móðurmál Ousseynou Niang (14) er wolof. Það er nógu erfitt fyrir hann að læra frönsku –opin­bert tungu­mál Senegal – en til við­bótar verður hann að læra ensku líka. Þessi litli drengur með stóru draumana veit að honum verður að takast vel upp hjá herra Ousmane Niane. Því létt­ari sem ensku orðin verða, því meiri tíma getur hann eytt á knatt­spyrnu­vell­inum.

Í lít­illi og þröngri kennslu­stofu vinnur Niane; glæsi­legur, mið­aldra maður í hvítri skyrtu og bláum jakka­fata­buxum, við að fá átta 13 og 14 ára gamla drengi til að skilja að lífið er ekki bara knatt­spyrna. Klukkan er nýorðin átta að morgni en úti er nálægt 30 gráðu hiti og hvítir sól­ar­geislar streyma inn í gegnum eina glugg­ann á stof­unni. Drengirnir eru allir klæddir í bláan og gráan Adidas-fatnað. Þeir eru með svip­aðar töskur og með svip­aðar klipp­ingar. Það sér eng­inn á þeim hver þeirra fékk áður þrjár mál­tíðir á dag og hver þeirra fékk bara eina.
Ousseynou skrifar niður text­ann sem Niane skrif­aði upp á töflu í stíla­bók með myndum af senegölskum knatt­spyrnu­hetjum framan á. Hann gerir það eins hratt og hann getur og með fal­legri tengi­skrift: „Þetta er fal­leg íbúð...“. Við hlið­ina á honum situr Ousmane Diaw. Hann er þegar búinn og sýnir kenn­ar­anum, sem hann kallar bara Sir, stíla­bók­ina sína.
„Sjáðu hérna, Sir, sjáðu!“

„Flott, Ousmane,“ segir Niane og blikkar hann yfir kringlótt gler­augun.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_06_26/64[/embed]

Draumurinn um Evrópu


Í Senegal spila allir knatt­spyrnu, alls staðar. Á alls kyns und­ir­lagi. Án eða í skóm. Með eða án bolta með lofti í. Alla dreymir um það sama: að spila knatt­spyrnu í Evrópu. Að geta klætt sig í ekta Barcelona-bún­ing – ekki gervi­treyju sem er götótt og skítug. Að geta spilað á gras­velli, ekki sand­velli sem liggur í halla. Og þá dreymir auð­vitað um pen­inga. Næga pen­inga til að sjá fyrir allri fjöl­skyld­unni.

Nem­end­urnir átta sem sitja í ensku­tím­anum hjá Niang hafa allir fengið ein­stakt tæki­færi upp í hend­urnar. Ásamt tíu öðrum drengjum var þeim í fyrra boðið pláss í knatt­spyrnu­aka­demíu og heima­vist­ar­skóla Diambars, í sam­keppni við börn hvaðanæva í Senegal. Þeir sem eru með mestu knatt­spyrnu­hæfi­leik­ana eru valdir óháð því hvaða guð þeir trúa á, hversu mikla pen­inga for­eldrar þeirra eiga eða hvort þeir hafa nokkru sinni komið áður inn í kennslu­stofu. Hér fá þeir menntun og metn­að­ar­fullt knatt­spyrnu­upp­eldi. Og þetta er allt frítt.

Það er vanda­mál í Senegal að drengir hætta í skóla til að leggja allt undir við að ná árangri í knatt­spyrnu. Og skyndi­lega standa þeir uppi alls­lausir, ýmist vegna meiðsla, slæ­legs umboðs­manns eða vegna þess að draum­ur­inn reynd­ist ein­fald­lega óraun­hæfur. Með menntun í fartesk­inu minnka lík­urnar á að þeir verði not­aðir, enda eru Evr­ópu­þjóð­irnar stans­laust að elt­ast við ódýra afríska knatt­spyrnu­dem­anta. Diambars er mjög upp­tekið af því að vernda nem­end­urna sína gagn­vart umboðs­mönnum sem sjá afríska leik­menn fyrir sér sem vörur, ekki mann­eskjur.

Framlag Vieira til föðurlandsins


Diambars-verk­efnið varð til fyrir ell­efu árum, árið 2003. Þjár fyrr­ver­andi knatt­spyrnu­hetjur og einn fjár­festir gengu þá saman í eina sæng við að búa til stofnun þar sem ástríðan fyrir knatt­spyrnu átti að hvetja unga Senegala til að ganga mennta­veg­inn. Sá þekkt­asti þeirra, Patrick Vieira, fædd­ist í Senegal og varð síðar fyr­ir­liði franska lands­liðs­ins.

Þetta er örstutt brot úr mjög ítar­legri frá­sögn af Diambars í nýjasta Kjarn­anum. Lestu hana í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár